Umferðarslysum fækkar um nærri helming á áratug í borginni 29. janúar 2008 09:58
Umferðarslysum í Reykjavíkurborg fækkaði um nærri helming á árunum 1996-2006 samkvæmt nýrri skýrslu framkvæmdasviðs borgarinnar. Þar kemur fram að árið 1996 hafi slysin verið 603 en tíu árum síðar voru þau 316. Þá fækkaði alvarlegum slysum einnig um helming, eða úr tæplega 80 í 40. Fram kemur í skýrslunni að reglugerð um ökuferilskrá og punktakerfi sem innleitt var árið 1999 hafi haft marktæk áhrif til fækkunar á slysum, sérstaklega alvarlegum. Þá hafa ýmsar framkvæmdir eins og uppsetning umferðarljósa og gerð hringtorga og mislægra gatnamóta ásamt lækkun hámarkshraða í 30 kílómetra í hverfum einnig aukið umferðaröryggi. „Þessar niðurstöður eru afar athyglisverðar og mikið fagnaðarefni fyrir okkur sem vinnum að því að bæta umferðarmenningu og öryggi almennings í umferðinni," segir Hrólfur Jónsson, sviðsstjóri Framkvæmdasviðs á vef Reykjavíkurborgar. Hann telur að niðurstöður skýrslunnar verði borginni og öðrum tvímælalaust hvatning til þess að leggja enn frekari áherslu á aðgerðir á þessu sviði. Höfundur skýrslunnar, Stefán Finnsson verkfræðingur hjá Framkvæmdasviði, segir að af samanburði á fjölda slysa á Íslandi þar sem landinu er skipt í fjögur svæði megi draga þá ályktun að aðgerðir í Reykjavík hafi skilað meiri árangri til fækkunar umferðarslysa en sjá má á öðrum svæðum á landinu. „Í upphafi tímabilsins urðu 37,5 prósent alvarlegra slysa á landinu hér í Reykjavík en árið 2006 var hlutfallið aðeins 25,6 prósent. Þetta er veruleg breyting," segir Stefán.
Mest lesið Gjörsamlega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu Innlent Ákærð fyrir manndráp: Á að hafa brugðið snöru um háls dótturinnar Innlent „Ásdís, stattu með samgöngusáttmálanum!“ Innlent Sjálfstæðisflokkur eykur forskotið á Samfylkingu í Reykjavík Innlent Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Innlent „Við erum bara komin aftur í Icesave-tímann“ Innlent Ákærður fyrir að veiða minka Innlent Spurningunni verði breytt og svarið einfalt „Já“ eða „Nei“ Innlent Fjórar „brúðir ISIS“ snúa aftur til Ástralíu Erlent Mikil tíðindi í nýrri Maskínu-könnun og fjölda afbrotamanna vísað úr landi Innlent Fleiri fréttir Vinstrið á fleygiferð og Viðreisn í lykilhlutverki Á sjötta tug vísað úr landi Boeing 757-þotur gætu kvatt Icelandair í haust Leggja til að börn verði ekki vistuð í brottfararstöðinni Ekki hafi tekist að sanna að brotið hafi verið á friðhelgi Páls „Þetta eru bestu launin, hlýjan í hjartað“ „Við erum bara komin aftur í Icesave-tímann“ Sjálfstæðisflokkur eykur forskotið á Samfylkingu í Reykjavík Gögn íslenskra nemenda mögulega í höndum netþrjóta Mikil tíðindi í nýrri Maskínu-könnun og fjölda afbrotamanna vísað úr landi Ákærð fyrir manndráp: Á að hafa brugðið snöru um háls dótturinnar Þóra og Ríkisútvarpið sýknuð af kröfum Páls skipstjóra Gera athugasemdir við að borgarbúar kjósi í Kópavogi Gjörsamlega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu „Það má ekki eyða peningum sem Alþingi hefur ekki úthlutað“ „Ásdís, stattu með samgöngusáttmálanum!“ Breytt verklag útskýri hærri tölur í áhættumati Ákærður fyrir að veiða minka Eldur í mannlausri rútu í Laugardal Spurningunni verði breytt og svarið einfalt „Já“ eða „Nei“ Örlítið fleiri fæðingar en frjósemin stendur í stað Ein minniháttar líkamsárás á annars rólegri vakt lögreglu Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Hættum að vera þjóð ef við höldum ekki upp á íslenskuna Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Kona á sjötugsaldri lenti á sjúkrahúsi með 125 pakkningar innvortis Vill fjölga börnum sem eru eingöngu á brjósti til sex mánaða Burðardýr í bráðaaðgerð og hindranir í samstarfi Sjá meira