Engin lög sett eða afnumin til að flýta fyrir Bakkaálveri 16. október 2008 11:25 MYND/GVA
Ríkisstjórnin hyggst ekki setja sérstök lög eða afnema lög til þess að flýta fyrir byggingu álvers á Bakka sagði Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra í fyrirspurnartíma á Alþingi í dag.Flokksbróðir hans, Mörður Árnason, spurði ráðherra út í málið og vísaði til auglýsingar frá forsvarsmönnum sveitarfélaga, stéttarfélaga og atvinnuþróunarfélaga á Norðurlandi í dagblöðum í dag. Þar er ríkisstjórnin hvött til að gera allt sem í hennar valdi stendur til þess að hægt verði að taka ákvörðun um byggingu álversins sem fyrst. Spurði Mörður hvort til stæði að beita neyðarlögum vegna framkvæmda við álver á Bakka og hvernig ríkisstjórnin hygðist bregðast við ákallinu að norðan.Össur Skarphéðinsson svaraði því til að brugðist yrði við því með skilningi. Ríkisstjórnin hefði lýst yfir að hún styddi álver á Bakka og hann hefði sjálfur sagt að hann myndi gera sitt til þess að flýta framkvæmdum. Hins vegar væri ekki ætlunin að setja sérstök lög vegna þessa og þá kæmi það ekki til greina að afnema lög um umhverfismat eins og lagt hefði verið til.Álveri á Bakka væri í eðlilegum farvegi. Rannsóknarboranir vegna orkuöflunar væru í umhverfismati og þær gætu vonandi farið fram næsta sumar. Ríkisstjórnin hefði gert sitt til þess að greiða úr ákveðnum misskilningi varðandi Bakka.Mörður fagnaði orðum ráðherra en gagnrýndi þann talkór sem lagt hefði til að svarið við ástandinu væri að varpa til hliðar lögum og reglugerðum. Sagði hann grægði, aðhaldsleysi og óstjórn í fjármálakerfinu hafa skapað núverandi ástand en því yrði ekki bjargað með sömu meðulum gagnvart náttúru landsins.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira