Innlent

Eitt dýrasta námskeið sögunnar

Helgi Hjörvar.
Helgi Hjörvar.

Helgi Hjörvar, þingmaður Samfylkingarinnar, segir að undanfarið hafi Íslendingar undanfarið sótt eitt dýra námskeið sögunnar.

Evruvæðing atvinnulífsins, amatörismi Seðlabankans og vanmáttur ríkisstjórnarinnar afhnjúpa nú þegar kreppir að hve tilfinnanlega við höfum einangrað okkur, að mati Helga Hjörvars þingmanns Samfylkingarinnar.

,,Engum blandast nú hugur um að við hefðum þurft öfluga mynt, stuðning sterkra stofnana, raunverulegan seðlabanka og aðild að samfélagi þeirra þjóða er mynda markað okkar, Evrópusambandið, til að takast á við það flóð sem okkur skall," segir Helgi í grein í Fréttablaðinu í dag.

Helgi segir að ekki sé hægt að fá allt fyrir ekki neitt og það sé ástæða fyrir að yfir markaði séu skipulagðar stofnanir, skrifræði, öryggisventlar og pólitísk stjórn. Því með reglulegum hætti bresta markaðir.

,,Við höfum nú sótt eitt dýrasta námskeið sögunnar um þessi grundvallaratriði. Lærum af þeim og byggjum nýtt Ísland upp í samfélagi við þær þjóðir sem við viljum deila mörkuðum með," segir Helgi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×