Írskir sjómenn mótmæla innflutningi á fiski frá Íslandi 13. júní 2008 13:34
Írskir sjómenn hafa staðið fyrir mótmælum síðustu daga en þeir eru afar óánægðir með innflutning á fiski frá Íslandi. Þeir hyggja á hungurverkfall á næstunni. 120 sjómenn lokuðu hliði að flugvellinum í Cork á mánudagskvöldið og komu þannig í veg fyrir að flutningabílar kæmust frá flugvellinum með fiskinn. Flutningabílarnir komust ekki leiðar sinnar fyrr en búið var að tæma þá af fisknum. Í írska blaðinu The Wexford People er greint frá því að innflutningurinn hafi valdið miklu uppnámi í írskum sjávarútvegi. Gagnrýnendur segja að fiskurinn sé veiddur í Suður-Ameríku og fluttur þaðan til Íslands. Þaðan sé hann svo sendur til Írlands og seldur í stórmörkuðum á uppsprengdu verði. Í greininni er rætt við sjómanninn John Kenny sem tók þátt í mótmælunum. Hann segir að á hverju kvöldi lendi vél frá Íslandi með fullfermi af fiski lendi á flugvellinum í Cork. Hann segir að nokkrir sjómenn hyggi nú á hungurverkfall til að mótmæla innflutningnum. „Við gætum allt eins soltið, því við erum ekki að fá neitt út úr veiðunum," segir Kenny, en til viðbótar við að þurfa að keppa við ódýran innfluttan fisk frá Íslandi er olíuverðið að sliga þá eins og aðra. Nú sé svo komið að 80 prósent af söluverðmæti fisksins fari í olíukaup.
Mest lesið Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Óttast að yfir áttatíu hafi farist Erlent Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Innlent Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Erlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðgangna til Eyja Innlent Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Erlent „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ Innlent Tveimur bjargað úr göngum níu dögum eftir skyndiflóðin Erlent Fleiri fréttir Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðgangna til Eyja Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Sjá meira