Innlent

Hreinn snýr aftur í Hæstarétt til að verja Birtíngsblaðamenn

Andri Ólafsson skrifar
Hreinn Loftsson stjórnarformaður útgáfufélagsins Birtíngs
Hreinn Loftsson stjórnarformaður útgáfufélagsins Birtíngs

"Ég tel að þessi dómur sé slíkt ódæmi að hann hefti eðlilega málnotkun í fjölmiðlum," segir Hreinn Loftsson stjórnarformaður útgáfufélagsins Birtíngs en tveir ritstjórar félagsins voru í dag dæmdir fyrir meiðyrði í garð Ásgeirs Davíðssonar á Goldfinger.

Ásgeiri voru dæmdar ein milljón í skaðabætur fyrir ummæli í tímaritsgrein sem birtist í Ísafold. Í greininni var því haldið fram að á Goldfinger þrifist mansal.

Að mati Hreins er orðið "mansal" skilgreint afar þröngt í niðurstöðu dómara. Það sé eins og það megi ekki nota orðið um neitt nema gamaldags þrælasölu þar sem fólk er flutt á milli landa í hlekkjum.

Veruleikinn sé hins vegar þannig að mansal eins og við þekkjum það í dag sé flóknara en svo.

"Það er ákveðið sambandsleysi við veruleikann að finna í þessum dómi. Niðurstaðan er að mínu mati fráleit og beinlínis hættuleg þróun málsins."

Eins og gefur að skilja af viðbrögðum Birtíngsmanna hefur verið tekin ákvörðun um að áfrýja dómnum til Hæstaréttar.

Hreinn ætlar sjálfur að flytja málið í Hæstarétti. Það verður í fyrsta skipti síðan 2002 sem Hreinn flytur mál í Hæstarétti.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×