Innlent

Um fimmtíu þúsund fögnuðu með landsliðinu

MYND/Pjetur

Eftir nærri sólarhringsferðalag frá Peking lentu Strákarnir okkar á Ísa-landinu góða nú síðdegis. Slegið var upp þjóðhátíð af því tilefni og safnaðist ótrúlegur fjöldi manna í miðbænum til að fagna með landsliðinu. Hátíðarhöldin gengu vel fyrir sig og samkvæmt tölum frá lögreglu voru um fimmtíu þúsund manns viðstaddir þessa mögnuðustu móttöku í sögu landsins frá því að handritin komu heim.

Við Arnarhól var mikið um dýrðir. Páll Óskar tók lagið og Valgeir Guðjónsson tók síðan við stjórninni og fékk meðal annars ráðherra, borgarstjóra, forseta Íslands, Ólympíuhafa, Ólympíufara, fyrrverandi landsliðsmenn og aðra viðstadda með sér í fjöldasöng.









„Breytum heiminum og verum best!“
MYND/Pjetur

Allur íslenski landsliðshópurinn var síðan kallaður upp á svið, einn í einu, allt frá nuddara til fyrirliða landsliðsins og var fögnuðurinn nær ólýsanlegur.

Starfandi forsætisráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, hélt síðan stutta ræðu þar sem hún lýsti því enn og aftur hversu stolt þjóðin væri af landsliðinu.

Því næst hélt Ólafur Stefánsson, landsliðsfyrirliði, ræðu þar sem hann þakkaði stuðninginn. „Þetta er eitt það magnaðasta sem ég hef upplifað. Takk fyrir að horfa á okkur," sagði Ólafur og bætti við að hann hefði aldrei verið eins stoltur af því að vera Íslendingur og nú. „Það er ótrúleg gjöf að fá að vera Íslendingur og við eigum að nýta það, keppa við sjálfu okkur og hvort annað. Höldum áfram að breyta heiminum og vera bara best!"








Fleiri fréttir

Sjá meira


×