Segir enga ósamstöðu í röðum Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði Andri Ólafsson skrifar 3. janúar 2008 13:35 Haraldur Þór Ólason, oddviti Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði
Guðmundur Rúnar Árnason, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Hafnarfirði, vekur á því athygli á vef Hafnarfjarðarbæjar að Haraldur Þór Ólason, oddviti Sjálfstæðismanna í bænum hafi gengið fram hjá tveimur varabæjarfulltrúum Sjálfstæðisflokksins þegar hann boðaði forföll á bæjarstjórnarfundi skömmu fyrir jól. Sveitastjórnarlög kveða skýrt á um að boði bæjarstjórnarmaður forföll skuli 1. varabæjarfulltrúi koma í hans stað, sé ekki hægt að boða hann þá skuli boða 2. varbæjarfulltrúa og koll af kolli. Við forföll sín boðaði Haraldur 3. varabæjarfulltrúa, Skarphéðinn Orra Björnsson. 1. varabæjarfulltrúi Sjálfstæðismanna, María Gylfadóttir, staðfesti við Vísi að hún hefði verið við símann og til taks þegar Haraldur boðaði forföll sín. Hún undrast því að hafa ekki verið boðuð á fundinn. Spurð hvers vegna hún haldi að Haraldur hafi farið svona gegn reglunum svarar hún að hann hljóti að hafa gleymt því hvernig þær virki. Haraldur Þór Ólason segir að hann hafi reynt að ná í Maríu þegar hann forfallaðist en ekki náð í hana. Þá hafi aðeins verið 30 mínútur þar til bæjarstjórnarfundurinn átti að hefjast og hann hafi því hringt í Skarphéðin Orra. Hann segir ekki ástæðu til að gera úr þessu mál eins og hann segir nokkra hafa reynt. María Gylfadóttir vonast til að þessi mistök Haraldar endurtaki sig ekki. Hún neitar því að þau sé merki þess að ósamstaða sé innan bæjarstjórnarflokks Sjálfstæðismanna en andstæðingar flokksins hafa haldið slíku kenningum á lofti undanfarin misseri. Þeir benda til að mynda á að varbæjarfulltrúarnir tveir sem Haraldur gekk framhjá til að koma Skarphéðni á fundinn, María Gylfadóttir og Bergur Ólafsson, hafi verið ósammála Haraldi í Álversmálinu sem mikið var deilt um í bænum í fyrra. María Gylfadóttir gefur lítið fyrir þessar kenningar: "Við stöndum saman um það sem við þurfum að standa saman um," segir hún.
Mest lesið Fjölmargir Íslendingar á ADHD-lyfjum sviptir bílprófi Innlent Virðist skipta máli hvaða stöðu fólk gegni Innlent Logar í yfirgefnum bústað við Elliðavatn Innlent Bæjarstjórinn einn á móti stækkun friðlýsingar Gróttu og Seltjarnar Innlent Kettir drápust á meðan eigandinn var á ferðalagi Innlent Sömdu um reglulegar samfarir í ár eftir sambúðarslit Innlent Á leið til Íslands átta vikum eftir slysið Innlent Tveggja bíla árekstur á Hellisheiði Innlent Sektuð um 23 þúsund krónur vegna tréspíramálsins Erlent Dorrit líkaði aldrei við „slepjulegan“ Epstein Innlent Fleiri fréttir Bíða enn gagna mánuði frá upphafi rannsóknar Gagnrýnin byggi „að miklu leyti á misskilningi“ Framlag Íslands mun minna en á hinum Norðurlöndunum Á leið til Íslands átta vikum eftir slysið VG vex og býður á stefnumót og Vor til vinstri leitar að fólki Allt rykbindiefni búið Fjölmargir Íslendingar á ADHD-lyfjum sviptir bílprófi Bruninn látinn klára sig og vettvangur afhentur lögreglu Framlag Íslands hlutfallslega lítið og svifrykið hrellir borgarbúa Dorrit líkaði aldrei við „slepjulegan“ Epstein Tveggja bíla árekstur á Hellisheiði Fá sálfræðitíma en vilja bætur Yngra fólk líklegra til að strengja áramótaheit Kettir drápust á meðan eigandinn var á ferðalagi Ekki innritað í fjóra leikskóla í Reykjavík í haust Logar í yfirgefnum bústað við Elliðavatn Bæjarstjórinn einn á móti stækkun friðlýsingar Gróttu og Seltjarnar Líkamsárásir, þjófnaðir og fíkniefnabrot Virðist skipta máli hvaða stöðu fólk gegni Ósammála um að það sé kostur að vera formaður utan þings Tengslanet veikara og andleg líðan verri í dag en fyrir rýmingu „Sprengjuflugvélar er ógnin sem við sjáum hér“ „Eins og við séum komin aftur á 1. mars 1989“ Vinnur fallega muni úr íslenskum trjám ASÍ og SA telja stjórnvöld á villigötum Jákvæð skref hafi verið tekin í vinnuhópi um málefni Grænlands Forstjóri í beinni, herþotur og bjór á vellinum Stúlkan er fundin Skoða að leigja hótel til að létta undir með bráðamóttökunni Ingibjörg fljót að rífa upp boxhanskana Sjá meira