Dómari sagður hafa hundsað skilgreiningu á mansali 4. júní 2008 15:34 Jón Trausti Reynisson.
Þau Jón Trausti Reynisson, fyrrverandi ritstjóri Ísafoldar og Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir, fyrrverandi ritstjórnarfulltrúi sama blaðs, hafa sent frá sér yfirlýsingu. Hún kemur í kjölfar dóms sem féll í héraðsdómi Reykjavíkur í dag þar sem Ásgeiri Davíðssyni, kenndum við Goldfinger, er dæmd ein milljón króna í bætur vegna skrifa sem birtustu um hann í Ísafold. Þau undrast niðurstöðu dómarans og segja meðal annars að hann hafi lagt krók á leið sína til að hundsa þá skilgreiningu á mansali sem lagt er út af í greininni. Yfirlýsingin fer hér á eftir: „Undirrituð áfrýja og mótmæla dómi í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag, þar sem Ásgeiri Davíðssyni, eiganda nektardansstaðarins Goldfinger, var dæmd milljón króna í miskabætur fyrir meiðyrði. Dómurinn kemur til vegna umfjöllunar í tímaritinu Ísafold um veruleika nektardansmeyja á Íslandi. Sigurður Hallur Stefánsson, dómari í málinu, leggur krók á leið sína til að hundsa þá skilgreiningu á mansali sem er gegnumgangandi í greininni, og sem viðurkennd er á alþjóðavettvangi af fagaðilum og af íslenskum yfirvöldum. Sjö af 22 ummælum sem kærð voru í greininni voru dæmd ómerk. Þar af vörðuðu fimm mansal. Sjöttu ummælin vörðuðu gjörðir „yfirmanna" á Goldfinger. Vitni, sem var yfirmaður á Goldfinger, viðurkenndi þær gjörðir fyrir rétti. Sjöundu ummælin varða umboðsmenn nektardansmeyja í Austur-Evrópu, en fram kemur í greininni að þeir hafi í einhverjum tilfellum tengsl við skipulagða glæpastarfsemi. Þau ummæli varða ekki persónu Ásgeirs Davíðssonar og því er undarlegt að dæmt sé fyrir þau. Sérstaka athygli vekur að dómari tekur hvorki mark á alþjóðlegum skilgreiningum á mansali, né orðum Guðrúnar Jónsdóttur, talsmanns Stígamóta, um mansal. Sem vitni fyrir dómi var hún ítrekuð stoppuð af þegar hún útskýrði hvernig alþjóðlega skilgreint mansal teygir anga sína til Íslands. Það vekur einnig undrun að Ásgeiri Davíðssyni séu dæmdar hærri miskabætur en fjölda fórnarlamba nauðgana. Ljóst er að samkvæmt fyrirliggjandi dómi er búið að kippa fótunum undan umræðu um mansal á Íslandi, sem fagaðilar staðfesta að sé til staðar. Dómurinn er aðför að málfrelsinu og móðgun við þá sem starfa við baráttuna gegn mansali, sem og fórnarlömb þess. Að viðhöfðu samráði við Elínu Ragnarsdóttur framkvæmdastjóra og Hrein Loftsson, stjórnarformann Birtíngs, hefur verið ákveðið að áfrýja dómnum umsvifalaust. Hreinn Loftsson mun flytja málið fyrir Hæstarétti."
Mest lesið Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Innlent Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Innlent Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunarbyrði Erlent Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Erlent Segir borgina vinda ofan af „langvarandi rugli og vitleysu“ Innlent Eyvindur P. Eiríksson látinn Innlent Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Innlent Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Innlent Ákærður fyrir að brjóta á börnum Erlent Ógilding réttarhaldanna gegn Clancy sett á ís vegna áfrýjunar Erlent Fleiri fréttir Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Fella niður gatnagerðargjald vegna bílakjallara Næstum allar ábendingarnar um Áfram Ísland Segir borgina vinda ofan af „langvarandi rugli og vitleysu“ Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Myndbönd af banaslysinu í dreifingu og kvartanir vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar Langreyðarkvótinn mun tæplega nást Fylgdarakstur um Hvalfjarðargöng að næturlagi í næstu viku Eyvindur P. Eiríksson látinn Lægðardrag teygir sig yfir landið Myndir: Opnunarhóf nýs Kvennaathvarfs Tekinn á 190 þar sem má aka á 90 kílómetra hraða Einn enn með stöðu sakbornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Sjá meira
Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Innlent
Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Innlent