Annþór segist blásaklaus Stígur Helgason skrifar 4. júní 2008 06:00 Sekir eða saklausir? Annþór mætti í dómsal hlaðinn mat og veigum sem hann útdeildi til sumra hinna sakborninganna, sem allir huldu andlit sín fyrir myndavélalinsunum. Fréttablaðið/gva
Tveir bræður sem ákærðir eru fyrir aðild að innflutningi á um fimm kílóum af fíkniefnum til landsins segjast báðir aðeins hafa verið milliliðir á milli höfuðpauranna, Annþórs Kristjáns Karlssonar og Tómasar Kristjánssonar, sem starfaði hjá hraðsendingarþjónustunni UPS. Annþór og Kristján neita hins vegar báðir sök og segjast hvergi hafa komið nærri smyglinu. Aðalmeðferð var í málinu í gær. Fjórir eru ákærðir, Annþór, Tómas og bræðurnir Ari og Jóhannes Páll Gunnarssynir. Þeir eru sakaðir um að hafa skipulagt smygl á 4,6 kílóum af amfetamíni og 600 grömmum af kókaíni til landsins frá Þýskalandi í nóvember síðastliðnum. Jóhannes játar skýlaust að hafa borið skilaboð á milli Ara bróður síns og Tómasar, og Ari játar sömuleiðis að hafa verið tengiliður Annþórs við Jóhannes. Ari neitar því hins vegar að hafa komið að skipulagningu smyglsins. Bræðurnir fullyrða báðir að Annþór hafi haft veg og vanda af fjármögnuninni og skipulagningunni, með aðstoð frá Tómasi, æskuvini Jóhannesar. Öll samskipti þeirra tveggja hafi þó farið í gegnum þá bræður. Bræðurnir gáfu skýrslu fyrir dómnum hvor í sínu lagi. Framburður þeirra var mjög áþekkur. „Annþór gerði bara eins og Annþór vildi gera,“ sagði Jóhannes, sem segist aldrei hafa getað haft áhrif á atburðarásina. „Ég var logandi hræddur við hann,“ sagði Ari, sem brast síðan í grát þegar hann lýsti framtíðaráformum sínum, en hann á von á barni með unnustu sinni. Annþór kom fyrir dóminn og kvaðst blásaklaus. Hann sagðist þekkja Ara eftir steraviðskipti, og hafa látið hann fá aðgang að tölvupóstsvæði sínu á vefnum sem hluta af hrekk. Ari hafi ætlað að senda bróður sínum skilaboð í nafni Annþórs til að hræða hann. Önnur málsatvik sagðist hann ekkert kannast við. Tómas gaf skýrslu síðastur sakborninga. Hann er sakaður um að hafa átt þátt í skipulagningu smyglsins, og að hafa átt að taka á móti efnunum þegar þau komu til landsins með hraðsendingu. Hann neitaði öllu og sagðist hvergi hafa komið nærri málinu. Hann kvaðst jafnframt hissa á því að Jóhannes, æskuvinur hans, hefði stungið hann í bakið með því að bera á hann þessar sakir. Tómas hefur setið í gæsluvarðhaldi vegna málsins síðan í janúar. Hæstiréttur staðfesti í gær framlengingu á varðhaldinu til 27. júní. Annþór sat lengi í varðhaldi en hefur nú hafið afplánun annars dóms. Báðir bræðurnir sátu um tíma í varðhaldi. Málið var dómtekið í gær að loknum vitnaleiðslum og málflutningi lögmanna.
Mest lesið Fimm ára drengur skilinn eftir í bíl á hálendinu Innlent Ríflega hundrað og sextíu ungmenni handtekin Erlent Troðfullur strætó ók fram hjá Kristrúnu sem fékk ekki pláss Innlent Biðlar til leigjenda að áframselja ekki úr Góða hirðinum Innlent Nýjasta sólmyrkvaspáin gefur ívið betri fyrirheit Veður Hafnaði úti í fjöru Innlent Hættu við að taka á loft vegna fugls sem hafnaði á vélinni Innlent Alls sjö líkamsárásir tilkynntar í gær og í nótt Innlent Virtu ekki lokanir vegna Gleðigöngunnar Innlent Þyrlan sækir mann eftir hestaslys Innlent Fleiri fréttir Ljónið, Karlsvagninn og reikistjörnur gætu stolið senunni þann 12. ágúst „Svolítið sérstakt“ að næturvaktin hafi sinnt fleiri útköllum Þyrlan kölluð út vegna mótorhjólaslyss á Sprengisandsleið Brotaþolar fluttir á slysadeild og allar árásirnar til rannsóknar Fimm ára drengur skilinn eftir í bíl á hálendinu Evrópumálin tekin fyrir í Sprengisandi Alls sjö líkamsárásir tilkynntar í gær og í nótt Þyrlan sækir mann eftir hestaslys Hættu við að taka á loft vegna fugls sem hafnaði á vélinni Troðfullur strætó ók fram hjá Kristrúnu sem fékk ekki pláss Virtu ekki lokanir vegna Gleðigöngunnar Stelpurnar fái sambærilega upplifun og strákarnir Biðlar til leigjenda að áframselja ekki úr Góða hirðinum Beint streymi frá Gleðigöngunni Sakar rektor um að hindra upplýsingamiðlun til þjóðarinnar Óskhyggja að vona að afgerandi svar fáist þann 29. ágúst Óskhyggja að vonast eftir afgerandi svari og deilan harðnar 72 ár síðan síðast en 170 ár þar til næst Slökkvilið brást við tilkynningu um reyk Hafnaði úti í fjöru Klukkustundar löng röð í öryggisleitina: Á hlaupum í átt að hliðinu Endaði út af eftir framúrakstur Baudenbacher úthýst úr hátíðarsal háskólans Hátt í sjö hundruð komast ekki á kjörskrá í tæka tíð Sjö hundruð fá ekki að greiða atkvæði og bókstafirnir burt Ný fjarskiptakerfi séu viðkvæmari hvað varðar útbreiðslu Brotist inn á meðan húsfrúin var heima: „Lífið er aðeins verra eftir þetta“ Hægt að nálgast staðarspár fyrir almyrkvaslóðir á sérstöku spásvæði Heimabærinn borgar fyrir útför Gunnars að hluta Einkunnir verða birtar í tölustöfum í stað bókstafa Sjá meira