Strætóbílstjórar veita stjórnarformanni „áminningu“ 4. júní 2008 10:40
Starfsmenn Strætó ætla að hittast á Hlemmi í dag klukkan fjögur þar sem þeir ætla að veita Ármanni Kr. Ólafssyni, stjórnaformanni Strætó, „áminningu". Nokkrir starfsmenn fyrirtækisins hafa átt í deilum við framkvæmdastjóra fyrirtækisins um nokkurt skeið. Á dögunum lýsti Ármann yfir stuðningi við Reyni Jónsson, framkvæmdastjóra félagsins og við það eru starfsmennirnir ósáttir. Starfsmennirnir segjast vonast eftir því að Ármann mæti og taki við áminningunni en hún er á þessa leið: 4. júní 2008. Herra Ármann Kr. Ólafsson, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi, Alþingismaður og Stjórnarformaður Strætó bs. Framkvæmdastjóri Strætó tók til starfa fyrir rúmlega ári síðan. Fyrir 6 mánuðum ákvað hann að eiga ekki (eðlileg) samskipti við, þá nýkjörna fulltrúa starfsmanna, gegn öllum samningum og lögum. "Afar sérstakar" stjórnunaraðferðir eru notaðar til að árétta "alvarleika málsins" svo ekki verði meira sagt. Í 6 mánuði hefur Framkvæmdastjóri notið fulltingis og verndar þinnar í þessari framkomu. Til að geta notið almennra mannréttinda höfum við ítrekað reynt að fá fundi með þér til að ræða afstöðu og framkomu Framkvæmdastjóra í garð starfsmanna. Framkvæmdastjóri segist ekki ætla að ræða við okkur, ekki veita frí til trúnaðarmannastarfa og þar með koma í veg fyrir að við getum t.d. undirbúið samningagerð eða átt aðkomu að ýmsum málum og jafnvel samningsbrotum fyrirtækisins í garð starfsmanna. Þú hefur lýst yfir stuðningi við vinnubrögð hans og að ólögmætur gjörningur þ.e. uppsögn 1. fulltrúa/trúnaðarmanns væri með þínu samþykki og vitund sem ásamt undantöldu stríðir gegn öllum stjórnsýslulögum. Þessi framkoma og stjórnunarstíll er með því alvarlegra sem sést hefur á vinnumarkaði sl. ár. Allavega fjögur mál eru fyrirsjánlega á leið fyrir dómstóla fyrir utan önnur stjórnsýslubrot sem verður vísað til lögformlegra aðila. Það er nokkuð ljóst að þú býður ekki upp á, né Framkvæmdastjóri Strætó, að ræða málin að hætti siðaðra manna. Ágæti Ármann Kr. Ólafsson: Sem skattgreiðendur og þar með atvinnurekendur þínir, bæði í bæjarstjórn Kópavogs og á Alþingi viljum við hér með veita þér skriflega áminningu fyrir að huga ekki að því til hvers þú varst kjörinn og hvert hlutverk þitt er. Því miður getum við ekki kosið þig til starfa fyrir okkur næsta kjörtímabil. Þú getur unnið af þér áminninguna með því að taka upp eðlileg vinnubrögð. Kjósendur og skattgreiðendur: Trúnaðarmenn Strætó Jóhannes Gunnarsson Ingunn Guðnadóttir Guðmundur I. Pétursson
Mest lesið Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Innlent Lögregluaðgerð á Laugavegi Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Erlent „Hvað hafa þau að fela?“ Innlent Fleiri fréttir Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Sjá meira