Innlent

Strætóbílstjórar veita stjórnarformanni „áminningu“

Starfsmenn Strætó ætla að hittast á Hlemmi í dag klukkan fjögur þar sem þeir ætla að veita Ármanni Kr. Ólafssyni, stjórnaformanni Strætó, „áminningu". Nokkrir starfsmenn fyrirtækisins hafa átt í deilum við framkvæmdastjóra fyrirtækisins um nokkurt skeið. Á dögunum lýsti Ármann yfir stuðningi við Reyni Jónsson, framkvæmdastjóra félagsins og við það eru starfsmennirnir ósáttir.

Starfsmennirnir segjast vonast eftir því að Ármann mæti og taki við áminningunni en hún er á þessa leið:

4. júní 2008.

Herra Ármann Kr. Ólafsson, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi, Alþingismaður og Stjórnarformaður Strætó bs.

Framkvæmdastjóri Strætó tók til starfa fyrir rúmlega ári síðan. Fyrir 6 mánuðum ákvað hann að eiga ekki (eðlileg) samskipti við, þá nýkjörna fulltrúa starfsmanna, gegn öllum samningum og lögum. "Afar sérstakar" stjórnunaraðferðir eru notaðar til að árétta "alvarleika málsins" svo ekki verði meira sagt.

Í 6 mánuði hefur Framkvæmdastjóri notið fulltingis og verndar þinnar í þessari framkomu. Til að geta notið almennra mannréttinda höfum við ítrekað reynt að fá fundi með þér til að ræða afstöðu og framkomu Framkvæmdastjóra í garð starfsmanna. Framkvæmdastjóri segist ekki ætla að ræða við okkur, ekki veita frí til trúnaðarmannastarfa og þar með koma í veg fyrir að við getum t.d. undirbúið samningagerð eða átt aðkomu að ýmsum málum og jafnvel samningsbrotum fyrirtækisins í garð starfsmanna.

Þú hefur lýst yfir stuðningi við vinnubrögð hans og að ólögmætur gjörningur þ.e. uppsögn 1. fulltrúa/trúnaðarmanns væri með þínu samþykki og vitund sem ásamt undantöldu stríðir gegn öllum stjórnsýslulögum.

Þessi framkoma og stjórnunarstíll er með því alvarlegra sem sést hefur á vinnumarkaði sl. ár. Allavega fjögur mál eru fyrirsjánlega á leið fyrir dómstóla fyrir utan önnur stjórnsýslubrot sem verður vísað til lögformlegra aðila.

Það er nokkuð ljóst að þú býður ekki upp á, né Framkvæmdastjóri Strætó, að ræða málin að hætti siðaðra manna.

Ágæti Ármann Kr. Ólafsson: Sem skattgreiðendur og þar með atvinnurekendur þínir, bæði í bæjarstjórn Kópavogs og á Alþingi viljum við hér með veita þér skriflega áminningu fyrir að huga ekki að því til hvers þú varst kjörinn og hvert hlutverk þitt er. Því miður getum við ekki kosið þig til starfa fyrir okkur næsta kjörtímabil. Þú getur unnið af þér áminninguna með því að taka upp eðlileg vinnubrögð.

Kjósendur og skattgreiðendur:

Trúnaðarmenn Strætó

Jóhannes Gunnarsson

Ingunn Guðnadóttir

Guðmundur I. Pétursson




Fleiri fréttir

Sjá meira


×