Innlent

Hafró mælir með minni kvóta

Hafrannsóknarstofnun hefur lagt fram tillögur sínar að kvóta fyrir næsta fiskveiðiár. Stofnunin leggur til að þorskkvótinn verði 124 þúsund tonn en árið þar á undan var hann 130 þúsund tonn. Ýsukvótinn yrði 83 þúsund tonn verði farið að ráðleggingum stofnunarinnar hann var 100 þúsund tonn.

Tillögurnar eru settar fram í skýrslunni Aflahorfur fiskveiðiárið 2008/2009 og þar virðast horfur fremur dökkar því stofnunin leggur til niðurskurð í flestum tegundum.

Þá er lagt til að ufsi verði skorinn niður um fimmtán þúsund tonn, fari úr 75 þúsund tonnum í 50 þúsund.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×