Vill kanna kosti þess að sameina TR og Vinnumálastofnun 7. maí 2008 11:39 MYND/Pjetur
Jóhanna Sigurðardóttir félags- og tryggingamálaráðherra hefur ákveðið að kanna kosti þess að setja á fót nýja stofnun velferðar- og vinnumála með því að samþætta starfsemi Tryggingastofnunar ríkisins og Vinnumálastofnunar. Þetta kom fram í setningarávarpi hennar á fjölþjóðlegri ráðstefnu um lífeyriskerfi framtíðarinnar sem nú stendur yfir. Í ávarpi sínu lagði ráðherra áherslu á þá stefnu ríkisstjórnarinnar að einfalda almannatryggingakerfið sem í áratugi hafi verið umtalað sem flókið og jafnvel óskiljanlegt þeim sem það á að þjóna. Þessu þyrfti að breyta en ráðherra sagðist jafnframt vilja ganga lengra og skapa lífeyriskerfi til framtíðar sem væri uppbyggilegt fyrir sérhvern einstakling og samfélagið í heild. „Því áforma ég að láta skoða hvernig við getum byggt á grunni tveggja mikilvægra stofnana, Tryggingastofnunar ríkisins og Vinnumálastofnunar, nýtt sóknarfæri og samlegðaráhrif með uppbyggingu nýrrar stofnunar velferðar- og vinnumála. Þetta vil ég vinna í fullu samráði við þessar stofnanir og starfsfólk þeirra. Þar búum við að mikilvægum mannauði, þekkingu og reynslu sem mikilvægt er að nýtist áfram í því breytingarferli sem framundan er. Báðar þessar stofnanir heyra nú undir félags- og tryggingamálaráðuneytið þannig að ég hef nú tækifæri til þess að horfa heildstætt á þessi tvö svið," sagði ráðherra meðal annars. Þannig væri hægt að koma fyrir á einum og sama stað allri þeirri velferðarþjónustu sem er á sviði vinnumála- og tryggingamála í eina stofnun.
Mest lesið Hafi hnakkrifist í teiti hjá Conan stuttu fyrir morðið Erlent Óvíst hvort Guðmundur Ingi snúi aftur í ráðuneytið Innlent Þau eru tilnefnd sem maður ársins Innlent Meðalbílaleigubíllinn verði fyrir mestum áhrifum Innlent Fjölgun landsmanna það eina sem hafi komið í veg fyrir tekjufall Rúv Innlent Skýrslan ekki til neins ef ekki verði brugðist við Innlent Umferðarslys á Breiðholtsbraut Innlent Ekki lengur hægt að breiða yfir sannleikann Innlent Segir Reiner hafa verið myrtan vegna andúðar í sinn garð Erlent „Ég var kölluð „hryðjuverkamaður““ Innlent Fleiri fréttir Meðalbílaleigubíllinn verði fyrir mestum áhrifum Óvíst hvort Guðmundur Ingi snúi aftur í ráðuneytið Fjölgun landsmanna það eina sem hafi komið í veg fyrir tekjufall Rúv Umferðarslys á Breiðholtsbraut Orð gegn orði um samskipti innan almannavarnarnefndar Skýrslan ekki til neins ef ekki verði brugðist við Faðir sem missti þrjú börn í Súðavík tjáir sig um uppgjör rannsóknarnefndar Bíll bilaði og Hvalfjarðargöngum lokað um stund Kanna áhuga á mögulegu framboði Guðlaugs í borginni Vistunin sé kerfisbundið brot á mannréttindum Hvorki álit né vangaveltur um ábyrgð einstaklinga í skýrslunni Þau eru tilnefnd sem maður ársins Lögðu hald á sautján skotvopn og skotfæri um helgina Stór mál standa enn út af Í takt við það sem verið hefur Aðalsteinn gefur kost á sér í oddvitasæti og fer í leyfi Bein útsending: Kynna skýrslu um snjóflóðið í Súðavík Þurftu að lenda í Liverpool á leið til Manchester Súðavíkurskýrslan afhent forseta Alþingis Ekki lengur hægt að breiða yfir sannleikann Heyrði skothvellina á Bondi strönd Vinstri beygjan bönnuð Sinntu fimmtán málum í tengslum við Iceguys tónleikana „Ég var kölluð „hryðjuverkamaður““ Magnea sækist eftir 2.-4. sæti á lista Samfylkingar Komu sér fyrir í ruslageymslu og kveiktu þar eld Vinna að því að koma upp efnagreiningu í neyslurýmum Ekki mótfallin Fljótagöngum en ekki með nýrri forgangsröðun Fleiri lífeyrisþegar og leikskólaforeldrar sem þurfa jólaaðstoð „Mjög erfitt starf tilfinningalega“ Sjá meira