Þakklátur þeim sem trúðu að ég væri heiðarlegur maður 17. desember 2008 11:52 Jón Ólafsson
Jón Ólafsson segist ekki getað annað en lofað drottinn og vonar að málinu sé hér með lokið. Meintum skattalagabrotum Jóns var vísað frá dómi að öllu leyti í morgun. Rannsóknin hefur tekið hátt í sjö ár og hefur haft mikil áhrif á Jón og hans fjölskyldu. „Þetta hefur haft mjög slæm áhrif á mig og mína fjölskyldu á þessum tíma. Það er fullt af viðskiptatækifærum sem hafa farið forgörðum vegna þessa en nú hefst bara ný tíð vonandi og ég er virkilega þakklátur því að þessu sé lokið," segir Jón í samtali við Vísi. Jón segist allan tímann hafa haft trú á því að þetta færi svona enda hafi þarna verið á ferðinni stormur í vatnsglasi. „Ég er ánægður fyrir mína hönd og minnar fjölskyldu og samstarfsaðila sem hafa haft trú á því að ég sé heiðarlegur maður með því að hafa treyst mér og trúað, þessu fólki er ég þakklátur," segir Jón sem segist hafa fundið fyrir miklum stuðningi hér á landi á meðan málinu hefur staðið. Aðspurður hvort hann óttist ekki að ákæruvaldið áfrýji frávísuninni segir Jón. „Ég get auðvitað ekki svarað fyrir þá en þeir eru þekktir fyrir að áfrýja öllu sem þeir geta."
Tengdar fréttir Meintum skattalagabrotum Jóns Ólafssonar vísað frá dómi Ákæru vegna meintra skattalagabrota Jóns Ólafssonar athafnamanns var í morgun vísað frá í Héraðsdómi Reykjavíkur. Jón hefur legið formlega undir grun í tæp sjö ár og fagnar verjandi hans úrskurðinum. Ásamt Jóni voru þeir Hreggviður Jónsson, Ragnar Birgisson og Símon Ásgeir Gunnarsson ákærðir og var málum þeirra tveggja fyrrnefndu einnig vísað frá en kröfu Símons um frávísun var hafnað. 17. desember 2008 11:46 Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Innlent Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Innlent Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Fleiri fréttir Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sjá meira
Meintum skattalagabrotum Jóns Ólafssonar vísað frá dómi Ákæru vegna meintra skattalagabrota Jóns Ólafssonar athafnamanns var í morgun vísað frá í Héraðsdómi Reykjavíkur. Jón hefur legið formlega undir grun í tæp sjö ár og fagnar verjandi hans úrskurðinum. Ásamt Jóni voru þeir Hreggviður Jónsson, Ragnar Birgisson og Símon Ásgeir Gunnarsson ákærðir og var málum þeirra tveggja fyrrnefndu einnig vísað frá en kröfu Símons um frávísun var hafnað. 17. desember 2008 11:46