Innlent

Telja slysahættu aukast

Slysahætta eykst í Bústaðahverfi þegar ökumönnum verður bannað að beygja til vinstri af Bústaðarvegi inn á Reykjanesbraut. Þetta segir fyrrverandi borgarstjóri og íbúi í hverfinu.



Ólafur F. Magnússon borgafulltrúi F-listans telur að lokunin auki flæði umferðar af Reykjanesbrautinni inn í íbúðahverfið sjálft.

Í samþykki borgarráðs er gert ráð fyrir að lokunin sé til reynslu í hálft ár. Lokuninni er ætlað að draga úr álagi við gatnamótin og verður á reynslutímanum kannað hvort biðraðir á annatímum styttist.

Ólafur segir að breytingin komi til með að auka verulega umferð framhjá Réttarholtsskóla og skapa þar með hættu fyrir börn á leið til og frá skóla.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×