Borgarstjóri einn í flugvallarmálinu 7. maí 2008 18:30
Borgarstjóri er hornreka innan borgarstjórnar í afstöðu sinni til flugvallarins í Vatnsmýri. Könnun Stöðvar 2 meðal borgarfulltrúa leiðir í ljós að eini maðurinn sem vill flugvöllinn áfram í Vatnsmýri, skilyrðislaust, er æðsti maður borgarinnar. Í apríl árið 2006 fyrir nokkrum meirihlutum í borgarstjórn lagði Ólafur F. Magnússon fram tillögu þess efnis að horfið yrði frá fyrirætlunum um brottflutning Reykjavíkurflugvallar úr Vatnsmýrinni. Tillagan var snarfelld með öllum atkvæðum - nema Ólafs, 14-1. En mannavalið í borgarstjórn hefur breyst síðan þá og eftir harkaleg ummæli borgarstjóra um sigurtillögu í Vatnsmýrinni um síðustu helgi, sem Sjálfstæðismenn og hann sjálfur hafa sagt vera oftúlkuð, vaknar sú spurning hvort afstaða borgarstjórnar til málsins hafi breyst. Fréttastofa Stöðvar 2 sendi öllum borgarfulltrúum eftirfarandi spurningu í tölvupósti: Vilt þú að flugvöllurinn fari eða verði áfram í Vatnsmýrinni? Þeir sem vilja flugvöllinn burt - skilyrðislaust eru: Dagur B. Eggertsson, Oddný Sturludóttir, Björk Vilhelmsdóttir, Sigrún Elsa Smáradóttir - Gísli Marteinn Baldursson, Júlíus Vífill Ingvarsson, Hanna Birna Kristjánsdóttir, Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir og Svandís Svavarsdóttir. Þeir sem vilja flugvöllinn burt - en með skilyrðum eru: Óskar Bergsson - sem vill hann burt ef annað stæði finnst innan borgarmarkanna. Þorleifur Gunnlaugsson - ef annar staður finnst sem fullnægir innanlandsfluginu jafnvel eða betur. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson - .þegar og ef jafngóður staður finnst. Hann er hins vegar andvígur flutningi innanlandsflugsins til Keflavíkur. Kjartan Magnússon - vill líka að hann fari finnist annar jafngóður staður í nágrenni Reykjavíkur. Einn borgarfulltrúi var ekki viðlátinn, en þess utan var borgarstjóri einn um að svara ekki. Skoðun hans hefur hins vegar verið öllum ljós - hann vill - einn kjörinna fulltrúa í borginni - flugvöllinn áfram í Vatnsmýri.
Mest lesið Nokkrir handteknir vegna mannsláts Innlent Fundu níu skipsflök og ummerki um snjóflóð á hafsbotni við Siglufjörð Fréttir Segir allt að 50 þúsund hermenn frá Norður-Kóreu á leið til Rússlands Erlent Breyting á geðheilsu og líkamlegu þreki Innlent Handtekinn eftir að kona og barn drukknuðu við Frelsissyttuna Erlent Ætlar að láta frysta egg sín og útilokar ekki forsetaframboð Erlent Wilhelm Wessmann er látinn Innlent Árekstur á Suðurlandsbraut Innlent Mikill viðbúnaður lögreglu í Vogunum Innlent Sækja slasaðan mann að Háafossi Innlent Fleiri fréttir Wilhelm Wessmann er látinn Sækja slasaðan mann að Háafossi Breyting á geðheilsu og líkamlegu þreki Árekstur á Suðurlandsbraut Nokkrir handteknir vegna mannsláts Maðurinn sem lögreglan leitaði að er fundinn Rannsaka manndráp á Kársnesi Mikill viðbúnaður lögreglu í Vogunum Einn fluttur á slysadeild í kjölfar alvarlegrar líkamsárásar Rósa Björk segir já Gangi Ísland í Evrópusambandið verði framsal ríkisvaldsins verulegt Muni hlusta og taka væntingar, þrár og áhyggjur til greina Grýtt á leið sinni heim úr Gleðigöngunni: „Þetta er nákvæmlega ástæðan fyrir því að við mætum“ Þjóðin þekki ekki annað en öryggisvernd frá Bandaríkjunum Hallalaus fjárlög ekki í spá fyrr en árið 2031: „Við höfum varað við þessu síðastliðið ár“ Ný skýrsla AGS og ummerki um snjóflóð á hafsbotni Ljónið, Karlsvagninn og reikistjörnur gætu stolið senunni þann 12. ágúst „Svolítið sérstakt“ að næturvaktin hafi sinnt fleiri útköllum Þyrlan kölluð út vegna mótorhjólaslyss á Sprengisandsleið Brotaþolar fluttir á slysadeild og allar árásirnar til rannsóknar Fimm ára drengur skilinn eftir í bíl á hálendinu Evrópumálin tekin fyrir í Sprengisandi Alls sjö líkamsárásir tilkynntar í gær og í nótt Þyrlan sækir mann eftir hestaslys Hættu við að taka á loft vegna fugls sem hafnaði á vélinni Troðfullur strætó ók fram hjá Kristrúnu sem fékk ekki pláss Virtu ekki lokanir vegna Gleðigöngunnar Stelpurnar fái sambærilega upplifun og strákarnir Biðlar til leigjenda að áframselja ekki úr Góða hirðinum Beint streymi frá Gleðigöngunni Sjá meira