LÍÚ hótar úrsögn úr SA vegna Evrópumála 24. nóvember 2008 16:42 Friðrik J. Arngrímsson framkvæmdastjóri LÍÚ og Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra.
Landssamband íslenskra útvegsmanna mun segja sig úr Samtökum atvinnulífsins verði þeim beitt fyrir inngöngu Íslands í Evrópusambandið. Þetta kemur fram í bréfi sem sent var til félagsmanna í LÍÚ og Samtökum fiskvinnslustöðva í dag. Þar kemur fram að frá því að Samtök atvinnulífsins voru stofnuð hafi það legið fyrir að samtökin beiti sér ekki í málefnum sem gangi gegn grundvallarhagsmunun einstakra aðildarsamtaka. Þess vegna hafi Samtök afvinnulífsins ekki tekið afstöðu með eða á móti inngöngu Íslands í Evrópusambandið. Mikil breyting hafi orðið á málflutningi fyrirsvarsmanna Samtaka atvinnulífsins á síðustu mánuðum án þess að formlegri afstöðu samtakanna hafi verið breytt. Stjórnarmenn í Samtökum atvinnulífsins frá aðildarsamtökum í sjávarútvegi hafi eindregið farið þess á leit að Samtökum atvinnulífsins verði ekki beitt í málinu, heldur verði það verkefni einstakra aðildarsamtaka að halda skoðun sinni á lofti. Málið var til umfjöllunar á síðasta stjórnarfundi Samtaka atvinnulífsins og þar hafi stefnu samtakanna ekki verið breytt. Stjórn LÍÚ hafi fjallað um málið og samþykkt einróma að verði Samtökum atvinnulífsins beitt fyrir inngöngu Íslands í Evrópusambandið þá muni stjórnin leggja það til við félagsmenn að LÍÚ segi sig úr Samtökum atvinnulífsins. „Nú hefur framkvæmdastjórn Samtaka atvinnulífsins, þrátt fyrir að við höfum óskað eftir að málið verði áfram á vettvangi stjórnar samtakanna, ákveðið að fram fari skoðanakönnun meðal aðildarfyrirtækja um það hvort fyrirtækin vilja að Samtök atvinnulífsins beiti sér fyrir aðild Íslands að Evrópusambandinu," segir í bréfinu. Þá segjast forsvarsmenn LÍÚ hafa farið þess á leit þegar ljóst var að ekki væri stuðningur fyrir því í framkvæmdastjórn Samtaka atvinnulífisins að halda óbreyttri stefnu að aðildarfyrirtæki Samtaka atvinnulífsins yrði spurð um það hvort þau vildu að Samtök atvinnulífsins beittu sér fyrir aðild að Evrópusambandinu og upptöku evru þrátt fyrir að því fylgdi afsal á yfirráðum yfir fiskimiðunum við Ísland og að forræði á samningum um sameiginlega fiskistofna færist til ESB. Þessari ósk hafi verið hafnað. Þá hafi einnig verið farið á leit við það að spurt yrði hvort aðildarfyrirtæki Samtaka atvinnulífsins væru hlynnt eða andvíg því að taka upp annan gjaldmiðil á Íslandi í stað krónu án inngöngu í ESB. Þessari ósk hafi einnig verið hafnað.
Mest lesið Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Innlent Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Innlent „Við búum í brjáluðum heimi“ Erlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Innlent Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Innlent Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Erlent Fleiri fréttir Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Sjá meira