Meirihluti þingflokks Framsóknar vill ESB-viðræður 4. nóvember 2008 16:19 Siv Friðleifsdóttir þingflokksformaður, Guðni Ágústsson formaður og Valgerður Sverrisdóttir varaformaður.
Meirihluti þingmanna Framsóknarflokksins vill að Ísland hefji aðildarviðræður við Evrópusambandið. Guðni Ágústsson, formaður flokksins, og Bjarni Harðarson eru í minnihluta í þingflokknum. Á kjördæmisþingi framsóknarmanna í Norðausturkjördæmi 26. október og nú seinast í Suðvesturkjördæmi kemur fram skýr vilji framsóknarmanna í ljósi breyttra þjóðfélagsaðstæða skuli hefja samningaviðræður um inngöngu í Evrópusambandið og upptöku evru. Áður hefur Samband ungra framsóknarmanna líst sig fylgjandi aðilarviðræðum. Það hafa Halldór Ásgrímsson og Jón Sigurðsson, fyrrum formenn flokksins, einnig gert. Skýr skilaboð frá grasrótinni ,,Þetta eru mjög skýr skilaboð frá grasrótinni í Framsóknarflokknum sem er að leggja þingmönnum flokksins línurnar hver stefna flokksins eigi að vera í Evrópumálum," sagði Birkir Jón Jónsson í samtali við Vísi og bætti við að ályktunin í Norðausturkjördæmi hafi verið samþykkt af þungavigtarfólki í flokknum. Þrír af sjö þingmönnum Framsóknarflokksins koma úr kjördæminu. Það eru Birkir Jón, Höskuldur Þórhallsson og Valgerður Sverrisdóttir varaformaður flokksins. Gengur lengra en núverandi stefna Samþykktir kjördæmaþinganna ganga lengra en stefna flokksins sem var samþykkt á miðstjórnarfundi í byrjun mars. Þar var kveðið á um tvöfalda þjóðaratkvæðagreiðslu. Þá fyrri um hvort hefja eigi í aðildarviðræður og þá seinni um hugsanlega inngöngu í Evrópusambandið. Í ræðu á fundinum sagði formaður flokksins að áður en þær komi til framkvæmda verði að gera breytingar á stjórnarskránni og af þjóðaratkvæðagreiðslu geti fyrst orðið í lok þessa kjörtímabils eða í síðasta lagið árið 2011. Þingflokkur Framsóknarflokksins. Magnús Stefánsson þingmaður Norðvesturkjördæmis sagði á heimasíðu sinni 3. október að krónan hefði runnið sitt skeið og aðild að Evrópusambandinu og upptöku evru væri eini kosturinn í stöðunni. ,,Ég er Evrópusinni" ,,Ég studdi tillöguna um tvöfalda þjóðaratkvæðagreiðslu á miðstjórnarfundinum og ég studdi mjög eindregið ESS-samninginn á sínum tíma. Ég er Evrópusinni og ég tel eðlilegt að þjóðin kveði upp úr um það hvort hún vilji ganga í Evrópusambandið eða ekki," sagði Siv Friðleifsdóttir þingflokksformaður Framsóknarflokksins og þingmaður Suðvesturkjördæmis í samtali við Vísi. Óróamenn í flokknum Bjarni Harðarson þingmaður Suðurkjördæmis er andstæðingur aðildar Íslands að Evrópusambandinu. Hann hefur jafnframt sett fram þá hugmynd að samningurinn um Evrópska efnahagssvæðið verði endurskoðaður. Í framhaldi á kjördæmaþingi flokksins í Suðurkjördæmi í október sagði Bjarni óróamenn í flokknum vísvitandi reyna að gera flokknum tjón með umræðu um Evrópumál.
Mest lesið Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Innlent Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Þýðir ekki að það sé algjört töfralyf við öllum sjúkdómum“ Innlent Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Innlent Réðst á dóttur sína eftir að hún rak honum löðrung Innlent Íslendingar segja já eða nei 29. ágúst Innlent Enginn meirihluti í Grindavík Innlent Fleiri fréttir Hleyptu málinu í gegn eftir að hafa fengið „leynigögnin“ Tímasetning Canvas-árásarinnar engin tilviljun „Búinn að vera í löngu atvinnuviðtali hér í bæ“ „Þýðir ekki að það sé algjört töfralyf við öllum sjúkdómum“ Þjóðaratkvæðagreiðsla í sumar og hvalveiðibátur á sjó Handsala samstarfið og gera Hilmar að bæjarstjóra Íslendingar segja já eða nei 29. ágúst Réðst á dóttur sína eftir að hún rak honum löðrung Hjalti Þór verður bæjarstjóri í Hornafirði Enginn meirihluti í Grindavík Ingimar verður bæjarstjóri í Hveragerði Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Stefán Carlsson er látinn Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Gert ráð fyrir atkvæðagreiðslu um aðildarviðræður í dag Gular viðvaranir og snjókoma næsta sólarhringinn Enn tekist á um ESB í þingsal og verðbólgan hjaðnar lítið Gylfi verður bæjarstjóri á Ísafirði „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Fækkar lögregluembættum Líta stöðuna í Varmá mjög alvarlegum augum Fagnar því að allir þingmenn fái að kynna sér ESB-gögnin Steinum kastað í bifreiðar og rúða brotin í skóla Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Sjá meira