Sex mánaða fangelsi fyrir að berja og bíta sambýliskonu 21. nóvember 2008 14:33
Tæplega þrítugur karlmaður hefur verið dæmdur í sex mánaða fangelsi fyrir að ganga í skrokk á fyrrverandi sambýliskonu sinni í júlí í fyrra. Samkvæmt ákæru réðst hann með höggum og spörkum að henni, sló hana með krepptum hnefa á vinstra kinnbein, skallaði hana í andlitið, klóraði hana og beit víðs vegar í líkamann auk þess sem hann sló hana í höfuðið með glervasa þannig að vasinn brotnaði. Hlaut konan mar á höfði og á enni, bólgur í andliti og klórför, bitför og mar víða á líkamanum. Maðurinn játaði brot sitt fyrri dómi en hann á að baki allnokkurn sakaferil sem nær tólf ár aftur í tímann. Með árásinni rauf hann skilyrði reynslulausnar vegna annars dóms. Var tekið tillit til þess og þess að árásin var hættuleg og beindist að sambýliskonu hans inni á heimili þeirra. Einnig var horft til þess að hann hefði leitað sér aðstoðar vegna vandamála sinna. Auk fangelsisdómsins var maðurinn dæmdur til að greiða konunni 225 þúsund krónur í bætur.
Mest lesið Bein útsending frá Sundahöfn: Hvað verður um áhöfn Bandero? Innlent Alelda bíll í Reykjanesbæ Innlent Ótrúleg eftirför: „Lyginni líkast að sjá það á fullri ferð úti á ballarhafi“ Innlent Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Innlent Tæplega 50 þúsund manns synt til Ceuta á einum sólahring Erlent Hálf áhöfnin bönnuð frá Evrópu í tvö ár Innlent Fjölmiðlanefnd eltist við Ólöfu og Kristínu Innlent Megas jarðsunginn í áhrifaríkri útför Innlent Paul Watson afar ánægður með handtökuna Innlent Komin handbók um hvernig stefna megi ríkjum og Ísland geti verið næst Innlent Fleiri fréttir Regnboginn kominn aftur á tröppurnar Hálf áhöfnin bönnuð frá Evrópu í tvö ár Ótrúleg eftirför, lögregla í beinni og unglingur kúgaður Paul Watson afar ánægður með handtökuna Reiðhjólamaður fluttur á slysadeild eftir árekstur Leita vitna að líkamsárás á Kótelettunni Búast við fjölmennasta Innipúka til þessa Aldrei liðið að öryggi sjómanna sé ógnað Alelda bíll í Reykjanesbæ Jákvæð teikn í leitinni að minkunum Ótrúleg eftirför: „Lyginni líkast að sjá það á fullri ferð úti á ballarhafi“ Bandero hafi beitt hættulegum aðferðum: „Þverskallaðist við að fylgja og hlýða fyrirmælum“ Sérsveitaraðgerðir á hvalaslóð og Verslunarmannahelgin að ganga í garð Samtökin hafi bjargað lífi allt að þrjátíu hvala Fjölmiðlanefnd eltist við Ólöfu og Kristínu Megas jarðsunginn í áhrifaríkri útför Bein útsending frá Sundahöfn: Hvað verður um áhöfn Bandero? Komin handbók um hvernig stefna megi ríkjum og Ísland geti verið næst Leggja áherslu á mannúðarlegar aðgerðir vegna minkanna Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Myndi glaður sjá réttarhöld yfir skipverjum Bandero „Þá bara krassa lungun“ Bruni við Breiðhöfða Vasaþjófnaður daglegur atburður og verulegar fjárhæðir teknar Vaktin: Bandero hrellir Hval 9 Þaulskipulagðir vasaþjófar, minkaveiðar og lífgjöf Dekk sprakk við lendingu vélar Borgarísjaka rekur í átt að Skagafirði Stærsta umferðarhelgi ársins hafin Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Sjá meira