Innlent

Stærsta verkefni á sviði náttúruverndar á Íslandi

Vatnajökulsþjóðgarður var stofnaður við formlega athöfn í dag. Efnt var til opnunarhátíðar í Gljúfrastofu í Jökulsárgljúfrum, á Skriðuklaustri í Fljótsdal, í Skaftafellsstofu í Skaftafelli og í Kirkjuhvoli á Kirkjubæjarklaustri.

Þjóðgarðurinn er 12.000 ferkílómetrar að stærð og er því stærsti þjóðgarður Evrópu. Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra sagði í ávarpi sínu í Skaftafelli að með stofnun þjóðgarðsins réðust Íslendingar í stærsta náttúruverndarverkefni frá upphafi.

Þá sagði umhverfisráðherra einnig að væntingar stæðu til þess að þjóðgarðurinn stækki á næstu misserum og árum, og nú stæðu yfir viðræður við landeigendur og sveitarfélög þess efnis. Hún væri m.a. afar bjartsýn um að hin sérstaka náttúra svæðisins við Langasjó og Eldgjá yrði hluti þjóðgarðsins að ári.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×