Innlent

Fjölmargir teknir fyrir hraðakstur í Seljahverfi

Brot 24 ökumanna voru mynduð í Skógarseli í Breiðholti í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Skógarsel í norðurátt, að Þverárseli.

Á einni klukkustund eftir hádegi fóru 180 ökutæki um akstursleiðna og því óku allnokkrir ökumenn, eða 13%, of hratt eða yfir afskiptahraða.

Meðalhraði hinna brotlegu var rúmlega 61 kílómetrahraða á klukkustund en í götunni er 50 kílómetra hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 69 kílómetrahraða.

Vöktun lögreglunnar í Skógarseli, en í nágrenni hans er Ölduselsskóli, er liður í eftirliti með hraðakstri við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×