Innlent

Össur atast í stjórnarandstöðunni

Össur Skarphéðinsson, iðnaðarráðherra og bloggari.
Össur Skarphéðinsson, iðnaðarráðherra og bloggari.

Össur Skarphéðinsson, iðnaðarráðherra, sendir forystumönnum stjórnarandstöðuflokkanna tóninn í nýjum pistli á heimasíðu sinni. Þing hefst í dag að nýju eftir að því var frestað í maílok. Skýrsla forsætisráðherra um efnahagsmál er eina málið á dagskrá.

Össur segir eitthvað að veruleikaskyni stjórnmálamanna sem halda því fram að ríkisstjórnin sé rúin trausti sama dag og Gallup sýni fram á að stuðningur við Vinstri græna hefur dregist saman frá fyrra mánuði og bæði Framsókn og Frjálslyndir séu töluvert undir kjörfylgi.

Í miðju efnahagsfári og spám um atvinnuleysi segir Össur að eina framlag forystumanna minnihlutaflokkanna hafi verið að kvarta undan því að nefndir þingsins hefðu ekki fundað og að ríkisstjórnin hefði gert grín að þeim í fyrra.

,,Halda þessir ágætu félagar mínir á Alþingi að það skipti miklu máli fyrir erfiðleikana sem Framsókn skildi eftir sig hvort þingnefndir fundi deginum lengur eða skemur? Hví nýttu þeir þá ekki lögbundinn rétt sinn til að krefjast funda fyrst þetta eyðilagði fyrir þeim sumarið?" skrifar Össur.

Össur segir að sér sé ekki kunnugt um neinn sem sitji nú á Alþingi hafi stutt stóriðju á jafn mörgu stöðum og Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG. ,,Ætli Steingrímur sé búinn að gleyma því að hann hleypti áfram álverinu á Keilisnesi, sem ekkert varð úr, lofaði að krefjast ekki laga gegn Helguvík kæmist hann í stjórn með Sjálfstæðisflokknum, studdi stóriðju (þó ekki ál) á Húsavík með tilheyrandi virkjunum, var í flokki sem studdi stækkun álversins í Straumsvík 1996, og líka byggingu Norðuráls á Grundartanga?"

Pistil Össurar er hægt að lesa hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×