Sögðu orð borgarstjóra og sjálfstæðismanna stangast á 6. maí 2008 16:29 MYND/GVA
Ekki stendur til að skera niður fjármagn til mannréttindamála í borginni heldur á að verja þeim í vel skilgreind verkefni. Þetta kom fram í máli Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, forseta borgarstjórnar. Borgarfulltrúar minnihlutans bentu á að þessi orð stönguðust á við orð borgarstjóra í fjölmiðlum um að hagræða þyrfti í málaflokknum. Tekist var á um mannréttindamál á borgarstjórnarfundi í dag en óvissa hefur verið um rekstur mannréttindaskrifstofu borgarinnar eftir að mannréttindastjóri sagði upp um síðustu mánaðamót. Samkvæmt fjárhagsáætlun hundrað daga meirihlutans svokallaða átti að verja um 80 milljónum til mannréttindamála og meðal annars fjölga starfsmönnum á mannréttindaskrifstofu. Í fjölmiðlum hefur Ólafur F. Magnússon borgarstjóri hins vegar gagnrýnt þá stefnu en hann átti þó aðild að meirihlutanum. Ekki niðurskurður mannréttindamálum Hanna Birna Kristjánsdóttir sagði á borgarstjórnarfundi í dag að ekki stæði til að skera niður fjármuni til mannréttindamála. Hinn nýi meirihluti teldi að það færi betur á því að styrkja einstök verkefni á vettvangi mannréttindamála í stað þess að eyða tilteknu fjármagni í starfsmenn á skrifstofu borgarinnar. Farsælla væri að hafa mannréttindastjóra og verkefnisstjóra og styrkja svo einstök verkefni. Fulltrúar minnihlutans fögnuðu þessum tíðindum en bentu jafnframt á að yfirlýsingar Hönnu Birnu stönguðust á við orð borgarstjóra í fjölmiðlum. Þannig vísaði Sigrún Elsa Smáradóttir, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar, til orða borgarstjóra í fréttum. Þar hefði borgarstjóri sagt að verkefni mannréttindaskrifstofu samkvæmt hugmyndum fyrri meirihluta væru óljós og um hagræðingu væri að ræða. Fráfarandi meirihluti hefði verið að víkka út stjórnkerfið. Spurði Sigrún Elsa Smáradóttir hvernig bæri að skilja þetta öðruvísi en að skera ætti niður fjármagn til málaflokksins. Gagnrýndi minnihlutinn sjálfstæðismenn fyrir að túlka orð borgarstjóra í málinu og kallaði eftir skýringum hans sjálfs. Eðlilegt væri að borgarstjórinn í Reykjavík gerði grein fyrir því hvernig fjármunum í málaflokknum yrði varið. Ef það yrði ekki gert sagðist Svandís Svavarsdóttir, borgarfulltrúi Vinstri - grænna, túlka það svo að hann hefði ekki áhuga eða þekkingu á málaflokknum. Sakaði minnihluta um sjónarspil Ólafur F. Magnússon borgarstjóri kom þá í pontu og gagnrýndi sjónarspil af hálfu minnihlutans. Hann hefði á 18 ára ferli sínum í borgarstjórn aldrei vitað til þess að borgarfulltrúar hefðu bókað um vanþekkingu og mannfyrirlitningu annarra borgarfulltrúa eins og nú hefði verið gert. Vísaði hann til bókunar frá síðasta borgarráðsfundi þar sem fram hefði komið að núverandi meirihluti hefði ákveðið að veita fjármunum í mannréttindamálum til borgarbúa en ekki til útþenslu stjórnkerfisins. Vísaði hann því á bug að meirihlutinn bæri síður mannréttindi fyrir brjósti en minnihlutinn. Benti hann enn fremur á að starf mannréttindastjóra hefði verið auglýst og hann yrði ráðinn innan skamms. Við hlið hans myndi starfa verkefnisstjóri.
Mest lesið Nokkrir handteknir vegna mannsláts Innlent Óttast að stefni í kreppuverðbólgu Innlent Fundu níu skipsflök og ummerki um snjóflóð á hafsbotni við Siglufjörð Fréttir Ætlar að láta frysta egg sín og útilokar ekki forsetaframboð Erlent Segir allt að 50 þúsund hermenn frá Norður-Kóreu á leið til Rússlands Erlent Wilhelm Wessmann er látinn Innlent Breyting á geðheilsu og líkamlegu þreki Innlent Frederiksen og Meloni taka höndum saman gegn innflytjendum Erlent Handtekinn eftir að kona og barn drukknuðu við Frelsissyttuna Erlent Árekstur á Suðurlandsbraut Innlent Fleiri fréttir Björgun við Háafoss krefjandi vegna böruburðar Óttast að stefni í kreppuverðbólgu Wilhelm Wessmann er látinn Sækja slasaðan mann að Háafossi Breyting á geðheilsu og líkamlegu þreki Árekstur á Suðurlandsbraut Nokkrir handteknir vegna mannsláts Maðurinn sem lögreglan leitaði að er fundinn Rannsaka manndráp á Kársnesi Mikill viðbúnaður lögreglu í Vogunum Einn fluttur á slysadeild í kjölfar alvarlegrar líkamsárásar Rósa Björk segir já Gangi Ísland í Evrópusambandið verði framsal ríkisvaldsins verulegt Muni hlusta og taka væntingar, þrár og áhyggjur til greina Grýtt á leið sinni heim úr Gleðigöngunni: „Þetta er nákvæmlega ástæðan fyrir því að við mætum“ Þjóðin þekki ekki annað en öryggisvernd frá Bandaríkjunum Hallalaus fjárlög ekki í spá fyrr en árið 2031: „Við höfum varað við þessu síðastliðið ár“ Ný skýrsla AGS og ummerki um snjóflóð á hafsbotni Ljónið, Karlsvagninn og reikistjörnur gætu stolið senunni þann 12. ágúst „Svolítið sérstakt“ að næturvaktin hafi sinnt fleiri útköllum Þyrlan kölluð út vegna mótorhjólaslyss á Sprengisandsleið Brotaþolar fluttir á slysadeild og allar árásirnar til rannsóknar Fimm ára drengur skilinn eftir í bíl á hálendinu Evrópumálin tekin fyrir í Sprengisandi Alls sjö líkamsárásir tilkynntar í gær og í nótt Þyrlan sækir mann eftir hestaslys Hættu við að taka á loft vegna fugls sem hafnaði á vélinni Troðfullur strætó ók fram hjá Kristrúnu sem fékk ekki pláss Virtu ekki lokanir vegna Gleðigöngunnar Stelpurnar fái sambærilega upplifun og strákarnir Sjá meira