Kompás í kvöld: Ríkislögreglustjóri laug að ríkissaksóknara 6. maí 2008 15:13 Haraldur Johannessen ríkislögreglustjóri. Mynd/ Vilhelm.
Ekki verður betur séð en að Ríkislögreglustjóraembættið hafi farið með rangt mál í bréfi til Ríkissaksóknara á síðasta ári. Í Kompási í kvöld er greint frá baráttu ættingja tveggja manna um að fá aðgang að gögnum vegna rannsóknar á andláti mannanna tveggja. Ríkislögreglustjórinn hafnaði þeirri beiðni. Ákvörðun Ríkislögreglustjórans var skotið til ríkissaksóknara. Þegar ríkissaksóknari fór fram á að fá þessi gögn í hendur til að meta málið svaraði Ríkislögreglustjóri að þau hefðu ekki fundist. Í bréfi Ríkislögreglustjórans sem dagsett er 22. ágúst 2007 segir: „Á Þjóðskjalasafni Íslands, sem geymir skjalasafn RLR, fundust engin gögn undir nöfnum hinna látnu þegar leitað var eftir þeim með símbréfi ríkislögreglustjórans 11. maí s.l."Skýringum ríkislögreglustjóra hafnað Vegna þessa sendi fréttaskýringaþátturinn Kompás fyrirspurn til Þjóðskjalasafns með beiðni um skýringar á þessu hvarfi gagna Rannsóknarlögreglu Ríkisins úr vörslu safnsins. Í svari frá Ólafi Ásgeirssyni þjóðskjalaverði er því vísað á bug að gögnin hafi horfið. Jafnframt segir hann að Ríkislögreglustjóra hafi verið kunngert að þau væru handbær nokkru áður en hann fullyrðir að þau finnist ekki. Í bréfi Ólafs segir að starfsmenn Þjóðskjalasafns hafi fundið gögnin þegar ríkislögreglustjóri bað um þau. „Í kjölfarið var fulltrúi embættis Ríkislögreglustjórans látinn vita að umrædd málsskjöl væru tilbúin til afgreiðslu á skrifstofu Þjóðskjalasafns," segir í bréfi Þjóðskjalavarðar. Þegar þeirra hafði ekki verið vitjað 6. júní hafi skjölin aftur verið færð á sinn stað. „Með vísan til ofangreindrar frásagnar er ljóst að fullyrðingar um að skjöl hafi horfið úr vörslum safnsins, eiga ekki við rök að styðjast," segir að lokum í svarbréfi til Kompáss.Upphaflega rannsakað sem sjálfsvíg Í Kompási í kvöld er fjallað ítarlega um tilraunir ættingja ungu mannana tveggja til að fá aðgang að lögreglugögnum en þeir hafa aldrei sannfærst um að allur sannleikurinn lægi á borðinu í þessu máli. Upphaflega var málið afgreitt sem sameiginlegt sjálfsvíg tveggja vina, en vísbendingar eru um að málið hafi verið í rannsókn sem sakamál árum saman.
Mest lesið Nokkrir handteknir vegna mannsláts Innlent Fundu níu skipsflök og ummerki um snjóflóð á hafsbotni við Siglufjörð Fréttir Segir allt að 50 þúsund hermenn frá Norður-Kóreu á leið til Rússlands Erlent Breyting á geðheilsu og líkamlegu þreki Innlent Handtekinn eftir að kona og barn drukknuðu við Frelsissyttuna Erlent Ætlar að láta frysta egg sín og útilokar ekki forsetaframboð Erlent Wilhelm Wessmann er látinn Innlent Árekstur á Suðurlandsbraut Innlent Mikill viðbúnaður lögreglu í Vogunum Innlent Sækja slasaðan mann að Háafossi Innlent Fleiri fréttir Wilhelm Wessmann er látinn Sækja slasaðan mann að Háafossi Breyting á geðheilsu og líkamlegu þreki Árekstur á Suðurlandsbraut Nokkrir handteknir vegna mannsláts Maðurinn sem lögreglan leitaði að er fundinn Rannsaka manndráp á Kársnesi Mikill viðbúnaður lögreglu í Vogunum Einn fluttur á slysadeild í kjölfar alvarlegrar líkamsárásar Rósa Björk segir já Gangi Ísland í Evrópusambandið verði framsal ríkisvaldsins verulegt Muni hlusta og taka væntingar, þrár og áhyggjur til greina Grýtt á leið sinni heim úr Gleðigöngunni: „Þetta er nákvæmlega ástæðan fyrir því að við mætum“ Þjóðin þekki ekki annað en öryggisvernd frá Bandaríkjunum Hallalaus fjárlög ekki í spá fyrr en árið 2031: „Við höfum varað við þessu síðastliðið ár“ Ný skýrsla AGS og ummerki um snjóflóð á hafsbotni Ljónið, Karlsvagninn og reikistjörnur gætu stolið senunni þann 12. ágúst „Svolítið sérstakt“ að næturvaktin hafi sinnt fleiri útköllum Þyrlan kölluð út vegna mótorhjólaslyss á Sprengisandsleið Brotaþolar fluttir á slysadeild og allar árásirnar til rannsóknar Fimm ára drengur skilinn eftir í bíl á hálendinu Evrópumálin tekin fyrir í Sprengisandi Alls sjö líkamsárásir tilkynntar í gær og í nótt Þyrlan sækir mann eftir hestaslys Hættu við að taka á loft vegna fugls sem hafnaði á vélinni Troðfullur strætó ók fram hjá Kristrúnu sem fékk ekki pláss Virtu ekki lokanir vegna Gleðigöngunnar Stelpurnar fái sambærilega upplifun og strákarnir Biðlar til leigjenda að áframselja ekki úr Góða hirðinum Beint streymi frá Gleðigöngunni Sjá meira