Innlent

42 þúsund hafa skrifað undir ávarp til Breta

Fjöldi þeirra sem skráð hefur nafn sitt við þjóðarávarp til Breta á netsíðunni indefence.is er kominn upp í rúm fjörutíu og tvö þúsund. Síðunni var hleypt af stokkunum í fyrradag og hafa viðbrögðin því verið snögg og mikil.

Þar er þeim skilaboðum komið áleiðis til umheimsins að Íslendingar séu ekki hryðjuverkamenn. Aðstandendur síðunnar segja álagið hafa verið svo mikið að síðan hafi legið niðri um tíma.

Þá segja þeir erlenda fjölmiðla sýna átakinu áhuga og að í nýrri útgáfu síðunnar verði hlutverk hennar útvíkkað og upplýsingum fyrir erlenda fjölmiðla bætt við.

Hér má skrá sig á undirskriftalistann.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×