Framsókn hvetur ráðamenn til að reka af sér slyðruorðið 3. maí 2008 19:07
Miðstjórn Framsóknarflokksins hvetur ráðamenn þjóðarinnar til að reka af sér slyðruorðið og grípa þegar til aðgerða til að sporna við vaxandi verðbólgu í samráði við atvinnulífið, sveitarfélög, verkalýðshreyfinguna og fjármálafyrirtæki. Þetta kemur m.a. fram í stjórnmálaályktun miðstjórnarinnar sem samþykkt var eftir vorfund hennar í dag. Í ályktunni segir svo: "Það er með öllu ólíðandi að dugleysi hins mikla stjórnarmeirihluta verði til þess að glutra niður þeim efnahagslega árangri og kaupmáttaraukningu sem náðist í ríkisstjórnartíð Framsóknarflokksins. Það blasir við að peningastjórn Seðlabanka Íslands nær ekki þeim markmiðum sem lagt var upp með. Mikilvægt er að taka til alvarlegrar skoðunar hvaða kostir eru mögulegir og hvernig hægt sé að tryggja hér langvarandi stöðugleika á fjármálamarkaði sem er forsenda heilbrigðs hagvaxtar og öflugs atvinnulífs. Nauðsynlegt er að gjaldeyrisforði og styrkur Seðlabankans sé í samræmi við umfang og þarfir íslensks atvinnulífs á hverjum tíma. Sé ekkert að gert er hætta á að fyrirtæki sjái hag sínum betur borgið með því að flytja starfsemi sína úr landi. Það myndi draga úr tekjum ríkissjóðs og auka enn á vanda hans."
Mest lesið Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Erlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Innlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Vara við snörpum hviðum Veður Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Innlent Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Erlent Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður Innlent Fleiri fréttir Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Sjá meira