Innlent

Steingrímur óskar eftir fundi utanríkismálanefndar

Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG.
Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG.

Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna, hefur farið fram á fund í utanríkismálanefnd sem fyrst til að fara yfir stöðu mála í samskiptum Íslendinga og Breta. Einnig til að ræðastöðuna almennt í utanríkisviðskiptum þjóðarinnar og með hvaða hætti utanríkismálanefnd geti beitt sér til góðs.

Þá hefur Steingrímur óskað eftir því að á dagskrá fundarins verði einnig tekið fyrir fyrirhugað herflug, æfingar og loftrýmiseftirlit Breta á Íslandi í desember.

Steinrímur fer fram á að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra, eða Össur Skarphéðinsson, starfandi utanríkisráðherra, mæti á fundinn.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×