Ótrúlega fullkominn 3. maí 2008 06:00 Aðalsteinn pantaði sér eðalvagn af gerðinni Ford Thunderbird á netinu og var heppinn. Hér er hann að pússa bílinn eftir veturinn. Fréttablaðið/Vilhelm
Líkt og farfuglar að vori birtast þrumufuglar á götunum þegar veturinn víkur. Þar er átt við Ford Thunderbird. Aðalsteinn Stefánsson sölumaður á einn slíkan af árgerð 1965. „Ég flutti þennan bíl inn fyrir réttu ári frá Oregon í Bandaríkjunum. Fann hann á netinu og náði að krækja í hann meðan dollarinn var í lægstu lægðum. Mér leist vel á hann á myndum, og líka lýsinguna og seljandann,“ segir Aðalsteinn sem er að taka Ford Thunderbird-bílinn sinn út úr skúrnum og skola af honum rykið eftir veturinn. Aðalsteinn býr í Mosfellsbænum og starfar sem sölumaður byggingavara. Hefur hann greinilega vit á viðskiptum enda telur hann sig hafa gert góð kaup þegar hann fjárfesti í Fordinum. „Bíllinn hafði lengi verið í eigu sömu fjölskyldu enda kom á daginn að hann var heill og óslitinn og í góðu lagi. Allt upprunalegt eins og það átti að vera.“ Hann brosir að spurningu um hvort hér sé um bensínhák að ræða. „Hann eyðir því sem maður setur á hann. Eða eins og góður maður sagði sem spurður var um svipaðan bíl: „Hann eyðir svona 80 lítrum – á ári.“ Þessir bílar ganga nefnilega ekki svo mikið að það skipti miklu um lítrann til eða frá.“ Þar sem engin númer eru á bílnum er Aðalsteinn spurður hvort hann taki hann af skrá á veturna. „Ég var nú bara að skipta um númeraplötu og ætla að setja á hann gamalt steðjanúmer eins og við megum hafa á fornbílunum. Þessi fær einkennisstafina T 65, T fyrir Thunderbird og 65 fyrir árgerðina.“ Aðalsteinn telur um tólf til fimmtán bíla til af Ford Thunderbird á Íslandi, af mismunandi árgerðum. „Þetta voru geysilega dýrir bílar á sínum tíma og það voru ekki margir sem eignuðust þá. En þeir voru líka ótrúlega fullkomnir. Þú sérð það á þessum sem er frá 1965 að hann var töluvert á undan sinni samtíð. Hann er með rafdrifnum rúðum, sætum og samlæsingum. Hann er líka fyrsti bíllinn sem kom með diskabremsum að framan. Það þótti mikið tækniundur á sínum tíma. En þetta eru lágir bílar, enda hugsaðir sem götutæki, og ég býst ekki við að minn bíll hafi nokkru sinni á malarveg komið. Hann hefði að minnsta kosti ekkert átt að gera við að fara út á vegina hér árið 1965.“ gun@frettabladid.is
Mest lesið Ekki lengur vafi á því hver hinn látni er Innlent Flaug hvorki með gömlu né nýju Air Force One Erlent Hóteláform Hreiðars strand vegna vegleysu Innlent Ungir Miðflokksmenn vildu ekki taka þátt í Gleðigöngunni Innlent Yfirlýsing Landskjörstjórnar: „Fullyrðing Morgunblaðsins er alfarið röng“ Innlent Dregur enn frekar úr líkum á samningi með skaðabótakröfu Erlent Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Innlent Fylgdust með rússneskum njósnara gefa útsendara gjöf Erlent Kæra varðhald þriðja mannsins til Landsréttar Innlent Gæsluvarðhalds krafist yfir þriðja manninum Innlent Fleiri fréttir Segir efnahagsmálin og verðbólguna að þróast í rétta átt Kristrún vísar ásökunum um sinnuleysi á bug Ekki lengur vafi á því hver hinn látni er Yfirlýsing Landskjörstjórnar: „Fullyrðing Morgunblaðsins er alfarið röng“ Vill að vinnu við gerð áhættumats verði flýtt Leita óþekkts árásarmanns á Þjóðhátíð Kæra varðhald þriðja mannsins til Landsréttar Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Þriðji maðurinn úrskurðaður í gæsluvarðhald Líkur á rigningu í Reykjavík þegar almyrkvinn gengur yfir Gæsluvarðhalds krafist yfir þriðja manninum Björgunarsveitir sinntu tveimur slösuðum ferðamönnum Hóteláform Hreiðars strand vegna vegleysu ,,Þetta eru kosningaherferðarfundir Kristrúnar Frostadóttur fyrir Já til að sjá'' Fyrir fólk sem búi á almyrkvaslóðinni sé nóg að „vera úti í garði og upplifa allt“ Ungir Miðflokksmenn vildu ekki taka þátt í Gleðigöngunni „Við sem samfélag þurfum að standa keik á móti þessu“ Aðallega „karlar að drepa aðra karla“ „Einfaldlega ók bifreið frá punkti A á punkt B“ Í gæsluvarðhaldi en segist einungis hafa verið bílstjóri Billy Long kominn á klakann Helga Lára Haarde aðstoðar Hildi Fólksfjöldi á Hellissandi tífaldast Leita ferðamannanna sem skildu fimm ára son sinn eftir í bíl Pysjutímabilið formlega hafið Bílstjóri ákærður fyrir að nauðga fatlaðri konu Bein útsending: Umdeildur fundur Baudenbacher Neitaði að borga og sló vagnstjórann Gat ekki hringt í 112 þegar alblóðugur maður bankaði upp á Huga þurfi líka að heimferðinni Sjá meira