Innlent

Ríkið gæti grætt þrjá milljarða á hækkandi eldsneytisverði

Ríkið gæti grætt allt að þrjú þúsund milljónir króna á þessu ári vegna hækkandi eldsneytisverðs, þrátt fyrir að álagning sé miðuð við fasta krónutölu.

Verð á eldsneyti hefur rokið upp á þessu ári og aldrei verið hærra en einmitt nú. Ríkið leggur 24,5 prósent virðisaukaskatt á hvern seldan bensíndropa og því mun hækkunin skila dágóðum aukatekjum í ríkisskassann.29.19

Miðað við heildar eldsneytissölu á síðasta ári og reiknað meðalverð eldsneytis það sem af er þessu ári - mun ríkið fá aukalega vegna hækkunar á eldsneytisverði um einn komma sex milljarða króna í formi virðisaukaskatts.

Um 800 milljónir fyrir bensín og um 760 milljónir fyrir sölu á díselolíu.

Þetta jafngildir að hvert mannsbarn hér á landi greiði aukalega um 5 þúsund krónur á þessu ári í ríkiskassann.

Ef verð á eldsneyti helst hins vegar óbreytt út árið - og jafnvel hækkar - gætu tekjur ríkissins aukist um allt að þrjá milljarða.

Á móti þessu kemur að með hækkandi eldsneytisverði dregur oftar en ekki úr eldsneytissölu og þá kann þetta einnig að hafa neikvæð áhrif á aðra neyslu í samfélaginu - þannig að ríkið verði af tekjum þar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×