Meindýraeyðir sakfelldur fyrir vopnalagabrot en refsingu frestað 12. júní 2008 17:20
Hæstiréttur sakfelldi í dag fyrrverandi meindýraeyði fyrir vopnalagabrot en frestaði ákvörðun um refsingu hans skilorðsbundið í tvö ár. Maðurinn var ákærður fyrir að hafa haft í fórum sínum fjölmargar byssur án þess að geyma þær í hirslum eins og lög gera ráð fyrir. Hann var áður meindýraeyðir á Norðurlandi en félag hans fór í þrot á fyrri hluta árs 2005. Eftir að lögregla fékk ábendingu fór hún í byrjun september sama ár í húsnæði þar sem fyrirtæki mannsins hafði verið og hann hafði sjálfur búið. Fann hún þar á átján byssur af ýmsu tagi á víð og dreif en ekki í byssuskáp eins og lög gera ráð fyrir. Um tveimur mánuðum síðar tilkynnti maðurinn að að þrettán byssum og veiðiboga hefði verið stolið á heimili hans. Aðstoðaði maðurinn lögregluna við að hafa upp á langflestum vopnunum en hann var engu að síður ákærður fyrir að hafa ekki gengið nógu tryggilega frá þeim. Í dómi Hæstaréttar kemur fram að þegar litið hafi til þess að vopnin voru tekin í innbroti á heimili mannsins, að hann hefði sérstaka geymslu fyrir vopnin þó að hún væri ekki fullnægjandi, að hann virtist hafa átt stærstan þátt í að lögreglu tókst að upplýsa málið og endurheimta vopnin, og að gögn lágu fyrir um að maðurinn hefði endurbætt aðstöðu á heimili sínu í samráði við lögreglu, þótti rétt að fresta ákvörðun refsingar hans skilorðsbundið í tvö ár. Maðurinn hafði hlotið tveggja mánaða dóm í héraði fyrir brot sín. Með þeim dómi voru vopnin gerð upptæk en Hæstiréttur felldi þá ákvörðun úr gildi.
Mest lesið Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi Innlent Lögregluaðgerð á Laugavegi Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Innlent „Hvað hafa þau að fela?“ Innlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Erlent Enn öðru flugi aflýst Innlent Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Erlent Fleiri fréttir Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Sjá meira