Bæjarráð fjallar um óánægju íbúa 12. júní 2008 18:08 Hringtorg við fjölbýlishúsið hefur verið umdeilt á meðal íbúa.
Bæjarráð Kópavogs fjallaði í dag um óánægju íbúa í fjölbýlishúsinu við Lundarbraut 1 vegna nálægðar hússins og nýrrar legu Nýbýlavegar, einkum við suðausturhorn hússins þar sem það nær út í lóðarmörk, næst hringtorginu á mótum Lundarbrautar og Nýbýlavegar. Bæjarráð fór yfir gögn málsins og athugasemdir sem borist hafa vegna framkvæmdar við Nýbýlaveg. Bæjarráð segir framkvæmdina innan marka gildandi skipulags, í samræmi við hönnunar- og útboðsgögn og ekki nær lóðarmörkum fjölbýlishússins við Lundarbraut 1 en heimilt er. Þá er segir bæjarráð að ljóst sé að hönnuðir fjölbýlishússins við Lundarbraut 1 hafa staðsett ákveðnar íbúðir í mikilli nálægð við samgöngumannvirkin og það kunni að valda íbúum þar óþægindum. Ítarleg athugun hefur farið fram á tillögum að færslu vegarins og hringtorgsins fjær fjölbýlishúsinu en tillögurnar þóttu allar rýra gæði umferðarmannvirkja, skila litlum ávinningi og kosta umtalsvert fé. Bæjarráð tekur hins vegar undir ýmis sjónarmið íbúa sem fram hafa komið. Í ljósi þess leggur bæjarráð Kópavogsbæjar til við framkvæmdaraðila á svæðinu að grípa til ýmissa ráðstafana til að koma til móts við sjónarmið íbúa. Í fyrsta lagi að BYGG, sem annast framkvæmdir innan Lundarsvæðisins, sjái um að akbrautin, sem liggur upp úr Lundarhverfinu og tengist Nýbýlavegi á hringtorgi, verði færð fjær Lundarbraut 1. Í öðru lagi að Vegagerðin athugi hvort unnt sé, þrátt fyrir fyrrnefnt óhagræði og kostnað, að minnka hringtorgið svo að norðurbrún Nýbýlavegar færist fjær Lundarbraut 1. Og í þriðja lagi að framkvæmdaraðilar breyti gönguleiðinni næst húsinu í sama tilgangi og rakinn hefur verið. Kópavogsbær hefur kynnt viðkomandi framangreindar tillögur bæjarráðs.
Mest lesið Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunarbyrði Erlent Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Erlent Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Innlent Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Erlent Tveimur bjargað úr göngum níu dögum eftir skyndiflóðin Erlent Óttast að yfir áttatíu hafi farist Erlent Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Innlent Einn enn með stöðu sakbornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði Innlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Fleiri fréttir Eyvindur P. Eiríksson látinn Lægðardrag teygir sig yfir landið Myndir: Opnunarhóf nýs Kvennaathvarfs Tekinn á 190 þar sem má aka á 90 kílómetra hraða Einn enn með stöðu sakbornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Sjá meira