Innlent

Kristinn íhugar stöðu sína

Kristinn H. Gunnarsson, fyrrverandi þingflokksformaður Frjálslynda flokksins.
Kristinn H. Gunnarsson, fyrrverandi þingflokksformaður Frjálslynda flokksins.

Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður Frjálslynda flokksins, íhugar stöðu sína innan flokksins í kjölfar ákvörðunar þingflokksins frá því fyrr í dag að gera Jón Magnússon að þingflokksformanni í stað Kristins.

Aðspurður hvort hann hafi hug á að segja sig úr flokknum segir Kristinn: ,,Það mun skýrast fljótlega."

Undanfarið hefur hart verið tekist á innan Frjálslynda flokksins og nýverið fór miðstjórn flokksins fram á að Kristinn yrði settur af sem þingflokksformaður. Fyrir helgi hótaði Jón að segja sig úr flokknum.

,,Ég vissi skömmu fyrir fundinn í dag að Guðjón ætlaði að bera upp aðra tillögu en hann hafði kynnt þingmönnum fyrir nokkrum vikum þegar hann sagðist ætla að gera tillögu um óbreytta stjórn," segir Kristinn og bætir við hann taki þessi ákaflega illa og hann hafi ekki samþykkt að verða varaformaður þingflokksins. Kristinn var ekki á þingflokksfundinum í dag.

Guðjón Arnar Kristjánsson var ekki fylgjandi tillögu miðstjórnar flokksins og sagði í samtali við Vísi 18. september að Kristinn væri lagður í einelti af einstaklingum í miðstjórninni.

,,Það liggur alveg fyrir að ég er ekki sammála þessari niðurstöðu," sagði Guðjón fyrir 11 dögum og bætti við að þingflokkurinn taki sínar ákvarðanir í þinginu líkt og aðrir þingflokkar. ,,Kristinn er þingflokksformaður þangað til annað verður ákveðið."

Kristinn segir að Guðjón gangi á bak orða sinn með þeim rökum að nú fá hann meiri frið í flokknum. ,,Guðjón lætur undan hótunum, ofbeldi og rógi sem beint hefur verið með skipulögðum hætti gegn mér og honum."

,,Ég hef enga trú á því að Guðjón fái einhvern frið," segir Kristinn og bætir við að það versta sem menn geri sé að láta undan hótunum því þannig muni þær einungis halda áfram. Kristinn er sannfærður um að þetta verði ekki í síðasta sem Jón beiti hótunum til að ná sínu fram.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×