Innlent

Forsetaembættið fær forsetabifreið Sveins Björnssonar

Ólafur Ragnar fær afhenta forsetabifreið Sveins Björnssonar á morgun.
Ólafur Ragnar fær afhenta forsetabifreið Sveins Björnssonar á morgun.

Á morgun, laugardaginn 3. maí, mun Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands taka á móti forsetabifreið Sveins Björnssonar sem nýlega hefur verið endurgerð.

Bifreiðin er af Packard-gerð, frá árinu 1942, og var fyrsta forsetabifreiðin, notuð á upphafsárum Sveins Björnssonar í embætti forseta Íslands. Hún var keypt notuð frá Bandaríkjunum en bifreið sömu gerðar hafði verið gjöf Roosevelts forseta til Sveins Björnssonar en hún var um borð í Goðafossi þegar skipið var skotið í kaf í nóvember 1944.

Bifreiðin er eign Þjóðminjasafns Íslands en verður geymd á Bessastöðum og notuð og sýnd við sérstök tækifæri.

Á morgun mun hópur félaga í Fornbílaklúbbi Íslands heimsækja Bessastaði á fornbílum sínum.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá forsetaembættinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×