Innlent

Flugmenn óttast atvinnuleysi

Flugmenn, sem Icelandair hefur sagt upp á árinu óttast að fá ekki vinnu annarsstaðar, sem jafnan hefur verið auðvelt þegar fyrirtækið hefur sagt upp flugmönnum.

Ástæðan er samdráttur í flugi víðasthvar í heiminum. Icelandair hefur sagt upp 16 flugmönnum til viðbótar þeim átta, sem greint var frá í síðustu viku, en 88 flugmönnum var sagt upp í hópuppsögnum í júni. Samtals eru þetta 112 flugmenn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×