Innlent

Enn óljóst hvort verslanir BT verða opnaðar aftur

Enn liggur ekki fyrir hvort verslanir BT verði opnaðar aftur. Fyrirtækið rekur sjö verslanir á landinu en þeim var lokað á föstudaginn.

Um fimmtíu manns starfa hjá BT en starfsfólk fékk ekki laun um síðustu mánaðamót. Viðræður standa nú yfir um mögulega sölu á BT og ríkir óvissa um framhaldið á meðan þær standa yfir. Ekki náðist í Sverrir Berg Steinarsson, forstjóra Árdegis, sem á og rekur verslanir BT, í morgun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×