Beiðni dagskrárstjóra RÚV um endurupptöku vísað frá Jón Hákon Halldórsson skrifar 5. maí 2008 16:35 Æðstu stjórnendur RÚV hafa ekki hlýtt upplýsingalögum. Mynd/ Heiða.
Úrskurðarnefnd um upplýsingamál hefur vísað frá beiðni þeirra Sigrúnar Stefánsdóttur og Þórhalls Gunnarssonar um að nefndin taki á ný fyrir synjun Ríkisútvarpsins um birtingu ráðningasamninga þeirra. Í september síðastliðnum fór Óskar Hrafn Þorvaldsson, ritstjóri Vísis, þess á leit að Vísi yrðu veittar upplýsingar um laun þeirra Þórhalls Gunnarssonar og Sigrúnar Stefánsdóttur, dagskrárstjóra hjá Ríkisútvarpinu. RÚV neitaði að láta upplýsingarnar af hendi. Ritstjóri Vísis kærði þá synjun til úrskurðarnefndar um upplýsingarmál. Hinn 11. mars síðastliðinn úrskurðaði nefndin að Ríkisútvarpinu væri skylt að láta þessar upplýsingar af hendi. Með úrskurði sem kveðinn var upp hinn 18. mars síðastliðinn synjaði úrskurðarnefndin svo kröfu Ríkisútvarpsins um að birtingu ráðningasamninganna yrði frestað. Hróbjartur Jónatansson, lögmaður Sigrúnar og Þórhalls, bað um endurupptöku á málinu á þeirri forsendu að umræddir ráðningarsamningar vörðuðu persónuleg réttindi umbjóðenda hans, sem njóti verndar samkvæmt lögum um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga og stjórnarskrárbundnu ákvæði um friðhelgi einkalífs. Taldi Hróbjartur að úrskurðarnefndin hefði átt að taka tillit til þess að Sigrún og Þórhallur væru aðilar að málinu. Þetta hafi nefndin ekki gert og þar með ekki gætt „grundvallarreglna stjórnsýsluréttar um upplýsinga- og andmælarétt, svo og um leiðbeiningarskyldu og rannsókn máls". Úrskurður nefndarinnar hafi því verið haldinn verulegum annmörkum og fullnægi ekki almennum stjórnsýslureglum. Því hafi skilyrði til endurupptöku máls verið fyrir hendi, sbr. 24. grein stjórnsýslulaga. Úrskurðarnefnd hafnaði hins vegar rökum Hróbjarts og telur að þau Þórhallur og Sigrún hafi ekki átt aðild að máli úrskurðarnefndar um upplýsingarmál. Þau geti því heldur ekki átt aðild að endurupptökumáli. Því var endurupptökubeiðni vísað frá.
Mest lesið Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Innlent Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár Innlent Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Innlent „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Innlent „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Innlent Sólmyrkvinn mögulega þúfan sem veltir hlassinu Innlent Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Innlent Útiloka ekki samstarf en sjá djúpa gjá í málefnunum Innlent Bandaríski sjóherinn vildi taka skip á leigu og gera út til Grænlands Erlent Alvarlegar afleiðingar „brúnkuefnis“ og meirihlutinn sem er ekki fyrsti kostur Innlent Fleiri fréttir Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Sekta fyrir nagladekk eftir helgi Sólmyrkvinn mögulega þúfan sem veltir hlassinu „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Útiloka ekki samstarf en sjá djúpa gjá í málefnunum Kjörbúðin lokar og ein verslun eftir í bænum Alvarlegar afleiðingar „brúnkuefnis“ og meirihlutinn sem er ekki fyrsti kostur Landskjörstjórn fellst á tillögur um nýtt orðalag Ekki áhyggjuefni að skipið sé á leið til Íslands „Skutlarinn“ ekki ákærður fyrir að berja Hauk Ægi með spýtu Gullgrafaraæði magnast upp í tengslum við sólmyrkvann Bein útsending: Ræða bakslag í jafnréttismálum Kosningaspá Vísis: Berjast hart um þriðja fulltrúann Einar Ólafsson, fyrsti forstjóri Cargolux, látinn Borgin víki sér ítrekað undan ábyrgð Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Ók í gegnum glerhurð í Kaupangi „Getur verið erfitt fyrir okkur sums staðar“ Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Forsetinn á fund páfans „Þetta er bara sanngirnismál“ Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Sigmar Ó. Maríusson er látinn Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ „Skilningur opnar ekki höfnina“ Sjá meira