Landsvirkjun gagnrýnir fund um Urriðafossvirkjun 5. maí 2008 17:00 Urriðafoss.
Svo virðist sem átök sem deilur Landsvirkjunar og andstæðinga virkjana í neðri hluta Þjórsár séu að harðna því nú hefur Landsvirkjun sent frá sér yfirlýsingu um að fulltrúi fyrirtækisins komi ekki á opinn fund um Urriðafossvirkjun í Þingborg í kvöld. Eins og fram hefur komið í fréttum eru allir jarðeigendur nema einn á áhrifasvæði Urriðafossvirkjunar á austurbakka Þjórsár andvígir því að virkjunin verði byggð. Þá hefur meirihluti kosningabærra íbúa á vesturbakka Þjórsár í Flóahreppi skorað á sveitarstjórnina að endurskoða þá ákvörðun að setja Urriðafossvirkjun inn á aðalskipulag sveitarfélagsins. Fulltrúi Landsvirkjunar kemur ekki Áhugafólk um samfélags- og umhverfismál í Flóahreppi boðaði til fundar um Urriðafossvirkjun í kvöld og þar kom fram að sjö manns með mismunandi skoðanir flyttu erindi. Landsvirkjun bregst við þessu í yfirlýsingu og segir að áhugahópurinn hafi auglýst að fulltrúi Landsvirkjunar fjalli um Urriðafossvirkjun á fundinum. Landsvirkjun hafi hins vegar ekki gefið vilyrði fyrir því að koma til þessa fundar og muni ekki gera það. Fyrirtækið harmi þessi vinnubrögð. Fundurinn ekki heppilegur vettvangur fyrir upplýsingar um virkjun Þá segir enn fremur í tilkynningu Landsvirkjunar: „Það vekur athygli að fjallað verður um jarðskjálfta og væntanlega áhrif þeirra á virkjunina. Hvorki hönnuðinum né þeim sem unnu áhættumat vegna hennar er boðið að kynna sín sjónarmið. Fjallað verður um lífríki Þjórsár og laxveiði en fulltrúa Veiðimálastofnunar sem unnið hefur viðamiklar rannsóknir á þessu efni er ekki boðin þátttaka.Þá flytur þarna erindi lögfræðingur sem stendur að stjórnsýslukæru á hendur Flóahreppi og Landsvirkjun sem er til meðferðar hjá stjórnvöldum. Ekki er tímabært að málsaðilar standi að umræðum um það efni nú," segir Landsvirkjun og telur fundinn ekki heppilegan vettvang til að koma á framfæri upplýsingum um Urriðafossvirkjun.„Fyrirtækið hefur haldið margar kynningar á virkjuninni á Suðurlandi og heldur þar úti fréttablaði um virkjanir í Þjórsá. Þá hefur fyrirtækið sett upp vefsíðuna www.thjorsa.is þar sem hægt er að nálgast upplýsingar um áform fyrirtækisins. Landsvirkjun mun hér eftir sem hingað til kappkosta að gefa sem gleggstar upplýsingar um virkjanir í Þjórsá," segir enn fremur í yfirlýsingu fyrirtækisins.
Mest lesið Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Erlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Innlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Vara við snörpum hviðum Veður Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Innlent Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Erlent Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður Innlent Fleiri fréttir Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Sjá meira