Sakar Seðlabankann um að tala niður fasteignaverð 6. maí 2008 14:14 MYND/Pjetur
Jóhanna Sigurðardóttir félags- og tryggingarmálaráðherra telur að óskynsamlegt hafi verið að tala niður fasteignamarkaðinn eins og Seðlabankinn hafi gert í spá sinni nýverið. Þetta kom fram í svari hennar við fyrirspurn Birkis Jóns Jónssonar, þingmanns Framsóknarflokksins, á Alþingi í dag. Birkir benti á að hann hefði ítrekað kallað eftir aðgerðum ríkisstjórnarinnar vegna fasteignamarkaðarins. Þar ríkti nú algjör stöðnun og aldrei hefðu eins fáir kaupsamningar verið þinglýstir. Fasteignasalar væru verkefnalausir og fregnir hefðu borist af verktökum í erfiðleikum vegna stöðunnar á markaði. Benti Birkir á að félagsmálaráðherra hefði í haust sagt að algert neyðarástand ríkti á markaðnum en ekkert hefði verið gert. Spurði hann hvað ríkisstjórnin ætaði að gera. Um væri að ræða grundvallarmannréttindi fólks, að koma sér þaki yfir höfuðið. Jóhanna Sigurðardóttir sagðist hafa áhyggjur af stöðu íbúðakaupenda eins og staðan væri nú en það væri ekki verið að gera ungu fólki greiða með því að hvetja það til fasteignakaupa þegar vextir væru háir og kjörin með þeim hætti sem raun bæri vitni. Sagðist hún geta fullvissað þingmanninn um að eins fljótt og auðið væri yrði farið í aðgerðir en tímasetningin skipti þar miklu máli. Þá sagði ráðherra að það myndi fara illa fyrir mörgum ef spá Seðlabankans um 30 prósenta lækkun fasteignaverðs gengi eftir. Það hefði að hennar mati verið mjög óskynsamlegt af Seðlabankanum að tala niður fasteignaverðið með þessum hætti.
Mest lesið Rabbíni drepinn í árásinni Erlent Skotinn tvisvar eftir að hafa tæklað annan skotmanninn Erlent Skilur að starfsfólk hafi ekki viljað afgreiða manneskju með hakakross Innlent Tvinn-rafmagnsflugvél sem lækka á fargjöldin Erlent Íslendingur í Brown-háskóla: Oftast í tímum í sömu stofu og árásin var gerð Innlent Tíu drepnir í skotárás á gyðingahátíð Erlent Mikið myrkur þegar ekið var á konu á rafhlaupahjóli Innlent Skotmennirnir feðgar Erlent Segir Kristrúnu verja „lögbrot“ samráðherra síns Innlent Þingmenn bannaðir á krám vegna skattahækkana Erlent Fleiri fréttir Ekki mótfallin Fljótagöngum en ekki með nýrri forgangsröðun Fleiri lífeyrisþegar og leikskólaforeldrar sem þurfa jólaaðstoð „Mjög erfitt starf tilfinningalega“ Handtekinn með stóran hníf Leggja til að bókasafnsgreiðslur verði hækkaðar Íslendingur í Brown-háskóla: Oftast í tímum í sömu stofu og árásin var gerð Ekkert því til fyrirstöðu að Ísland taki þátt í drónakaupum Ekkert ákveðið varðandi framboð: „Ég er í tveimur flokkum“ Hálka þegar bíll valt í Biskupstungum Mikið myrkur þegar ekið var á konu á rafhlaupahjóli 270 íbúðir í byggingu í Þorlákshöfn Ástandið á bráðamóttökunni sýni viðkæmni kerfisins Segir Kristrúnu verja „lögbrot“ samráðherra síns Hryðjuverkaárás í Ástralíu og ástand í heilbrigðiskerfinu Sanna segir frá nýju framboði Dyraverðir handteknir vegna líkamsárásar Skýrsla ráðherra svari ekki mikilvægum spurningum um brúun bilsins Aðstæður bágbornar á spítalanum til að mæta svo miklu álagi Tveir fluttir á spítala vegna umferðarslyss í Biskupstungum Bjarnveig Birta og Stein Olav sigurvegarar forprófkjörs „Ég fæddist inn í pólitískan líkama“ Eldur í íbúð við Snorrabraut Skilur að starfsfólk hafi ekki viljað afgreiða manneskju með hakakross Sjúklingar ekki lengur í bílageymslu bráðamóttökunnar Sameiningu Dalabyggðar og Húnaþings vestra hafnað Píratar vilja ganga til viðræðna um sameiginlegt framboð Mikilvægt að geyma stafræn gögn innan lögsögunnar Bæjarskrifstofur fluttar: „Þetta húsnæði er barn síns tíma“ Óttast að fólk sleppi að kaupa lyf vegna minni greiðsluþátttöku Munu reyna að fá nýju virkjunarleyfi hnekkt Sjá meira