Áfangasigur - segir lögfræðingur systursona Fischer SB skrifar 25. júní 2008 18:03 Lögfræðingur systursona Fischer segir niðurstöðu Hæstaréttar áfangasigur. "
Það má segja að þetta sé áfangasigur," segir Guðjón Ólafur Jónsson, lögmaður systursona Bobby Fischer. Hæstiréttur ómerkti úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur sem hafði hafnað kröfum systursonanna um að dánarbúið yrði tekið til opinberra skipta. "Nú fer í raun fram málflutningur í Héraðsdómi um hvort opinberu skipti skuli fara fram. Þetta er einn áfangi á langri leið," segir Guðjón Ólafur. Erfðamál Fischer er í flóknari kantinum. Auk systursona Fischers gerir hin japanski Myoko Watai kröfu í búið en hún segist vera eiginkona Fischers. Til að flækja málið enn frekar dúkkaði upp kona á Filipseyjum sem sagðist vera móðir barns Fischer. Ef það reynist rétt á barnið auðvitað að erfa föður sinn. Erfðamálið teygir því anga sína til fjölda landa en systursynirnir eru bandarískir. "Faðir þeirra var í einhverju sambandi við Fischer og reyndi að hjálpa til við að bjarga honum frá Japan á sínum tíma. Ég veit samt ekki í hve miklu sambandi systursynirnir voru við Fischer," segir Guðjón Ólafur. Og væntanlega verður hasar í Héraðsdómi þegar málflutningurinn fer fram og eiginkonur þurfa að sannreyna hjúskap sinn, börn að sanna faðerni sitt og ættingjar að reyna á rétt sinn. Enda eftir miklu að slægjast - þó Fischer hafi ekki lifað í ríkidæmi hér á landi skildi hann eftir sig bústnar bankabækur sem fjöldi manns hefur auga á.
Tengdar fréttir Ómerkir úrskurð héraðsdóms um dánarbú Fischers Hæstiréttur hefur ómerkt úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur sem hafnaði kröfum systursona Bobbys Fischer, fyrrverandi skákmeistara, um að dánarbú hans yrði tekið til opinberra skipta. Er málinu vísað aftur heim í hérað til löglegrar meðferðar. 25. júní 2008 16:55 Mest lesið Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Óttast að yfir áttatíu hafi farist Erlent Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Innlent Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Erlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Erlent „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Innlent Fleiri fréttir Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Sjá meira
Ómerkir úrskurð héraðsdóms um dánarbú Fischers Hæstiréttur hefur ómerkt úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur sem hafnaði kröfum systursona Bobbys Fischer, fyrrverandi skákmeistara, um að dánarbú hans yrði tekið til opinberra skipta. Er málinu vísað aftur heim í hérað til löglegrar meðferðar. 25. júní 2008 16:55