Nærri 350 tilkynningar um kynferðisbrot í fyrra 21. nóvember 2008 16:45
Nærri 350 tilkynningar um kynferðisbrot, þar af 90 um nauðganir, bárust lögreglunni á síðasta ári. Eru þetta 14 prósentum fleiri brot en að meðaltali árin 2002-2006. Alls voru 346 málin kærð og var um að ræða 265 einstaklinga en langstærstur hluti þeirra var karlar. Þetta kemur fram í afbrotatölfræði Ríkislögreglustjóra fyrir síðasta ár. Alls voru framin rúmlega 78 þúsund brot á landinu í fyrra og segir ríkislögreglustjóri að brotum fari almennt fækkandi. Þannig voru hegningarlagabrot um 13 þúsund og fækkað um þrjú prósent milli ára. Þá voru skráð tæplega 60 þúsund umferðarlagabrot og lagðar fram kærur vegna 56 þúsund þeirra. Um 74 prósent kærðra voru karlar. Þá reyndust auðgunarbrotin nærri 6.200 í fyrr og reyndust talsvert færri á tímabilinu 2005-2007 en 2002-2004. Þjófnaðir og innbrot voru 87 prósent auðgunarbrotanna. Enn fremur voru tvö manndráp framin í fyrra sem er sami fjöldi og að meðaltali 2002-2006. Tilkynnt var um fleiri minniháttar líkamsárásir, eða um 1200, en að meðaltali 2002-2006 en færri meiriháttar líkamsárásir, eða um 200, sé miðað við meðalfjölda yfir sama tímabil. Þá voru um 1.850 fíkniefnabrot skráð í fyrra sem er 16 prósenta fjölgun frá árabilinu 2002-2006. Voru 1.488 brotanna vegna „vörslu eða neyslu", sem er jafnframt þriðjungsfjölgun slíkra brota miðað við meðalfjölda á fyrrgreindu tímabili. Má rekja þessa fjölgun að einhverju leyti til aukinnar frumkvæðisvinnu lögreglu. Eina markverða fjölgunin á haldlögðu magni fíkniefna árið 2007 frá árunum 2002-2006 var magn e-taflna en um var að ræða 14 kíló og rúmlega 26.000 stykki.
Mest lesið Önnur stúlka með móður sinni þegar Högni var klófestur Innlent Líkir kærunni við „faglega aftöku“ Innlent Þjóðverjar yfirgefa Grænland Erlent Setur „stærsta samning í sögunni“ í uppnám Erlent Vilja beita „ofurvopni“ ESB gegn Bandaríkjunum Erlent Gríðarleg vonbrigði og mikið áhyggjuefni Erlent Karólína Helga skákaði sitjandi oddvita í Hafnarfirði Innlent Minnir á hvernig Hitler komst til valda Innlent Var í símanum við neyðarlínuna þegar ekið var aftan á hann Innlent „Í mínum huga eru þetta klárar ærumeiðingar“ Innlent Fleiri fréttir Samþykktu aldrei að Sanna fengi oddvitasætið Minnir á hvernig Hitler komst til valda VG og Sanna sameina krafta sína Sala á grænlenskum á Íslandi nær tvöfaldast Ekkert athugavert við fundinn og stjórnin starfshæf Stjórnvöld „í blindflugi“ í menntamálum í rúman áratug Haldið upp á 80 ára afmæli Hveragerðis allt afmælisárið Sambandið aldrei verra: Ísland gæti bæst á listann Dæmi um að nemendur hafi aldrei mætt í leikfimi Grænlandstollar vonbrigði og verðbólga spillir kjarasamningum Stöðugleikasamningarnir gætu sprungið strax í haust Heimsmálin, Grænland, menntun og fjölmiðlun á Sprengisandi Karólína Helga skákaði sitjandi oddvita í Hafnarfirði Ísland standi með Grænlandi og Danmörku Vonar að skólarnir verði frjálsir frá símum í haust Álagning aldrei hærri: Eldsneytisverð hefði átt að lækka enn frekar Líkir kærunni við „faglega aftöku“ „Vegferð ákæruvaldsins til skammar“ Menntamálaráðherra tekur yfir hjúkrunarheimilin Fjögur handtekin á Akureyri grunuð um innbrot Viðvarandi óvissuástand bitni á langtímaáætlunum fyrirtækja Einn endaði á hliðinni og þrjú klemmdust á milli Var í símanum við neyðarlínuna þegar ekið var aftan á hann Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna „Hef hvergi hallað réttu máli“ Önnur stúlka með móður sinni þegar Högni var klófestur Fá þau að vera aftur á lista með Hildi? Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut og tveir fluttir á slysadeild Eigum eftir að sjá hvort Guðbrandur bæti upp fyrir hegðun sína Umfangsmikil lögregluaðgerð við Glerárgötu á Akureyri Sjá meira