Sjö milljónum veitt úr Háskólasjóði KEA 14. júní 2008 15:41 Þeir Kristján og Halldór í hópi styrkþega.
Kristján Möller, samgönguráðherra og Halldór Jóhannsson, framkvæmdastjóri KEA afhentu í dag sjö milljónir króna úr Háskólasjóði KEA. „Samstarfsyfirlýsing KEA og Háskólans á Akureyri um styrktarverkefni var fyrst undirrituð þann 31. október 2002 og hefur frá þeim tíma verið úthlutað árlega úr sjóðnum," segir í tilkynningu. „Þann 8. september 2007 var samningurinn endurnýjaður og bættust við styrkir til búnaðarkaupa og almennir námsstyrkir. Við úthlutun er almennt horft til verkefna sem eru viðbót við samþykkta starfsemi HA og/eða samstarfsstofnana, verkefna sem fela í sér aukin eða útvíkkuð tækifæri fyrir nemendur og starfsmenn eða verkefni sem eru til þess fallin að efla byggð og tengingu við atvinnulíf, menningu eða náttúrufar félagssvæðisins. Einnig veitti KEA nemendum í viðskipta- og raunvísindadeild viðurkenningar fyrir námsárangur á brautskráningu Háskólans." Þá segir að stjórnin geti árlega ráðstafað allt að tveimur milljónum króna til sérstakra verkefna sem eru til þess fallin að „efla enn frekar starf HA og/eða stuðla með einum eða öðrum hætti að frekari uppbyggingu og vexti skólans. Þetta geta verið sérstök átaks- eða þróunarverkefni innan einstakra deilda eða verkefni sem tengjast skólanum í heild." Ákveðið hefur verið að ráðstafa 1,5 millj. kr. til þess að auka stuðning við rannsóknir innan HA. „Fénu verður varið í sérstakt átaksverkefni innan HA sem felst í því að fjölga birtingum starfsmanna á greinum í framúrskarandi fræðiritum. Greinaskrif í framúrskarandi fræðirit er ein helsta vísbending um gæði rannsóknastarfs háskóla en HA hefur náð umtalsverðum árangri á því sviði sem mikilvægt er að viðhalda og jafnframt að sækja enn lengra fram. Háskólinn á Akureyri leggur fram 8,5 milljónir kr. í þessu skyni." Umsóknir sem bárust sjóðnum að þessu sinni voru 28 talsins og upphæðin sem sótt var um rúmar 23 milljónir. Níu aðilar fengu styrk en alls komu rúmar 7 milljónir til úthlutunar að þessu sinni.
Mest lesið Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Óttast að yfir áttatíu hafi farist Erlent Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Innlent Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Erlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðgangna til Eyja Innlent Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Erlent „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ Innlent Tveimur bjargað úr göngum níu dögum eftir skyndiflóðin Erlent Fleiri fréttir Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðgangna til Eyja Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Sjá meira