Innlent

800 grömm af hassi í Breiðholti

Lögreglan lagði í gærkvöldi hald á að um 800 gr af hassi og um 200 þúsund í peningum við húsleit í Breiðholti. Að sögn lögreglu var húsleitin gerð á grundvelli úrskurðar frá Héraðsdómi Reykjavíkur. Tveir voru handteknir vegna málsins.

Karlmaður, 25 ára, var handtekinn og verður yfirheyrður í dag og annar karlmaður 23 ára gamall, var einnig handtekinn en sleppt að lokinni yfirheyrslu.

Við húsleitina naut lögreglan aðstoðar fíkniefnaleitarhunds frá Tolli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×