Nærri fimm þúsund fleiri fluttu til landsins en frá því 2. september 2008 09:06
Ríflega 4700 fleiri fluttu til landsins en frá því á fyrstu sex mánuðum ársins samkvæmt nýjum tölum Hagstofunnar. Nema aðfluttir umfram brottflutta á þessum tíma um einu og hálfu prósenti af íbúafjölda landsins. Um er að ræða umtalsverða fjölgun miðað við sama tímabil í fyrra en þá nam fjölgunin um 2600 manns. Áfram flyst fólk utan af landi og til höfuðborgarsvæðisins. Svokallaður flutningsjöfnuður reyndist jákvæður um 3500 manns á höfuðborgarsvæðinu og hann var einnig jákvæður fyrir alla aðra landshluta nema Austurland og Vestfirði. 150 fleiri fluttu frá Austfjörðum en til þeirra á fyrri helmingi ársins og 44 fleiri frá Vestfjörðum en til þeirra. Fækkunina á Austurlandi má að stærstum hluta rekja til brottflutnings erlendra starfsmanna frá Reyðarfirði þar sem álver Alcoa var reist, en þaðan fluttust 192 á fyrri helmingi ársins. Eins og undanfarin ár fjölgar erlendum ríkisborgurum sem flytjast til Íslands og hafa þeir aldrei verið fleiri. Á fyrstu sex mánuðum ársins fluttu 4500 fleiri erlendir ríkisborgara til landsins en frá því en þeir foru tæplega þúsund í fyrra. Þrátt fyrir mikinn aðflutning til landsins hefur orðið nokkur samdráttur á umfangi búferlaflutninga innanlands. Fyrstu sex mánuði ársins var heildarfjöldi skráðra flutninga innanlands 23.208 á móti 25.812 á sama tíma í fyrra. Rétt er að hafa í huga að nokkur töf getur orðið á því að útlendingar sem fá dvalarleyfi séu skráðir í íbúaskrá og að sama skapi getur dregist að þeir einstaklingar sem flytjast af landi brott séu felldir úr íbúaskrá.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Fleiri fréttir Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Sjá meira