Halldór: Fer ekki burt úr starfi með fúlgur fjár 18. október 2008 11:43
Halldór J. Kristjánsson, fyrrverandi bankastjóri Landsbankans, segist ekki vera að hverfa frá starfi sínu með fúlgur fjár og telur sig ekki bera ábyrgð á því hvernig fór fyrir bankanum. Hann segir enn fremur að breska og íslenska fjármálaeftirlitið hafi komið að vinnu á þessu ári sem sneru að nýrri stöðu Icesave-reikninga Landsbankans. Halldór var gestur í þætti Björns Inga Hrafnssonar, Markaðnum á Stöð 2 í morgun. Þar var farið yfir fall Landsbankans og aðdragana þess. Halldór sagði að sér þætti mjög miður að fjöldi fólks og fyrirtækja skyldu tapa fjármagni á falli bankans en taldi aðspurður að hann sem bankastjóri bæri ekki ábyrgð á fallinu. Við værum að takast við afleiðingar af dýpstu fjármálakreppu allra tíma og það hafi enginn geta séð fyrir að svona færi. Bankarnir byggðu upp stóra atvinnugrein Hann bendir á að íslensku bankarnir hafi verið búnir að byggja upp stærstu atvinnugrein landsins og gert Ísland að fjármálamiðstöð. Hér hafi verið sköpuð hálaunastörf og skattgreiðslur hafi aukist. Byggð hafi verið upp mjög stór og myndarleg atvinnugrein og honum finnist sorglegast að það hafi ekki tekist að verja hana falli. Um bónusgreiðslur til stjórnenda bankanna sagði Halldór að menn hefðu vafalaust farið of geyst. Það hefðu verið greiddir háir bónusar hér á landi sem í útlöndum. „Ég verð að segja fyrir sjálfan mig að ég hef aldrei verið mikið fyrir að berast á," sagði Halldór og bætti við að hann væri ósköp venjlegur fjölskyldumaður. Hann væri ekki að fara frá starfi sínu með fúlgur fjár. Þá sagðist Halldór aðspurður ekki óttast hvítbók um bankana sem forsætisráðherra hefði boðað heldur fagnaði hann henn. Enn fremur sagðist hann tilbúinn að koma að þeirri vinnu að byggja Ísland aftur upp. Sóttist eftir starfi Landsvirkjunar. Fram kom í þættinum að Markaðurinn hefði heimildir fyrir því að Halldór hefði tilkynnt samstarfsmönnum sínum í Landsbankanum það að hann hefði sóst eftir starfi forstjóra Landsvirkjunar sem auglýst var nýverið. Hann hefði hins vegar verið beðinn um að sitja áfram í stóli bankastjóra vegna erfiðra aðstæðna. Halldór sagði um þetta að hann hefði verið mikill áhugamaður um uppbyggingu orkuiðnaðarins og hann teldi að hann yrði mikil og sterk stoð fyrir Íslendingar. Hann hefði alveg verið tilbúinn að skipta um starfsvettvang. Aðspurður hvort hann sæi eftir því að hafa ekki hætt hjá Landsbankanum sagði Halldór að hann vissi ekki hvað skyldi segja, hann væri ánægður með að hafa verið á sínum póst.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira