Innlent

Mikil aukning í lánum Íbúðalánasjóðs

Guðmundur Bjarnason er framkvæmdastjóri Íbúðalánasjóðs.
Guðmundur Bjarnason er framkvæmdastjóri Íbúðalánasjóðs.

Heildarútlán Íbúðalánasjóðs námu tæpum 8 milljörðum króna í september, sem er ríflega 40% aukning frá fyrra mánuði.

,,Þar af voru tæplega 5,6 milljarðar vegna almennra lána og tæpir 2,4 milljarðar vegna leiguíbúðalána. Heildarútlán sjóðsins námu rúmum 22,3 milljörðum króna á þriðja ársfjórðungi og hafa heildarútlán í einum fjórðungi ekki verið meiri síðan á öðrum ársfjórðungi 2004," segir í tilkynningu.

Heildarútlán sjóðsins nema rúmum 47 milljörðum það sem af er árinu 2008.

Meðalútlán almennra lána námu um 11,3 milljónum króna í september og jukust lítillega frá fyrra mánuði eða um 3,5%.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×