Indverskur gúru vill messa við setningu Alþingis 1. september 2008 16:41 Rajan Zed vill ólmur messa yfir íslenskum þingmönnum.
Indverskur trúarleiðtogi, Rajan Zed að nafni, hefur óskað eftir því að hann fái að fara með bænir úr fornum trúarritum Hindúa fyrir setningu Alþingis þann 1. október næstkomandi. Frá þessu er greint á vefmiðlinum merinews.com. Þar er sagt frá því að Zed hafi borist svar við fyrirspurn sinni frá Þorsteini Magnússyni, aðstoðarskrifstofustjóra Alþingis, þar sem beiðninni er hafnað. Þorsteinn segist kannast við málið í samtali við Vísi en að fyrirspurnin hafi fyrst borist í fyrra. „Hann hafði samband fyrir ári síðan og spurði hvort það kæmi til greina að vera með einskonar messu fyrir þingsetninguna. Þeirri beiðni var hafnað og hann var að ítreka þetta núna en ég er nú ekki búinn að svara honum," segir Þorsteinn. Hann segir hinsvegar ekki standa til að gera breytingar á athöfninni sem hefur verið með nokkurnveginn óbreyttu sniði frá árinu 1845. Þegar Zed Rajan er slegið upp í alfræðisafninu Wikipedia kemur í ljós að hann hefur sóst nokkuð eftir því að fara með hindúabænir á ríkisþingunum í Bandaríkjunum og hefur hann fengið sínu framgengt í Nevada, Kalíforníu og Núju Mexíkó og fleiri ríkjum. Einnig hefur hann fengið að messa í öldungadeild Bandaríkjaþings. Zed Rajan var einnig í fararbroddi í sumar þegar trúarleiðtogar úr hópi Hindúa börðust fyrir því að grínmyndin "The Love Guru" yrði sniðgengin í bíóhúsum vestanhafs. Fréttina á merinews.com má sjá hér.
Mest lesið Segir Bjarna Benediktssyni að stinga tappa upp í „tengdasoninn“ Innlent „Ozempic tennur“ meðal aukaverkana þyngdarstjórnunarlyfja Innlent Verða boðaðir á fund lögreglu Innlent Hvar eru þau nú? Lífið Segir „rasistum“ að leggja íslenska fánanum og fá sér sinn eigin Innlent „Heppnir að enginn hafi dáið“ Innlent Ókunnugur næturgestur á Patreksfirði Innlent Gengst við eftirlíkingunum: „Ég þekki ekki þessi lög og seldi þessar myndir ekki“ Innlent Nawrocki sigraði með naumindum Erlent Vopnaður heimagerðum eldvörpum Erlent Fleiri fréttir Veitingamaður með langan brotaferil hlaut þunga sekt Faðir bræðranna sem létust segir úrræði gegn fíkn rjúkandi rúst Áminning Höskuldar stendur Þarf ekki að víkja úr dómsal: „Þegar þú drepst þá mun ég brosa“ Frá Goðafossi að Gróttuvita með hundrað kíló í eftirdragi Slæmt að fá hret á varptíma Verða boðaðir á fund lögreglu Lögregla boðar tónleikahaldara á sinn fund Segir „rasistum“ að leggja íslenska fánanum og fá sér sinn eigin Þorleifur keilari hvergi nærri af baki dottinn Áhugi á Bandaríkjareisum snarminnkar Fordæmir vinnubrögð njósnaranna Segir Bjarna Benediktssyni að stinga tappa upp í „tengdasoninn“ „Heppnir að enginn hafi dáið“ Vill sjá upplýsingaspjald um kjörna fulltrúa í ráðhúsinu Ókunnugur næturgestur á Patreksfirði Nikótínpúðar vinsælastir „Ozempic tennur“ meðal aukaverkana þyngdarstjórnunarlyfja „Beið eftir því að eitthvað stórslys myndi gerast“ Sögulegur „köngulóavefur“, troðningur á tónleikum og stemning á degi sjómanna „Glatað að heyra af því að fólk hafi meitt sig“ Stærsta brautskráning í sögu skólans Einn lagður inn á sjúkrahús eftir tónleikana Gengst við eftirlíkingunum: „Ég þekki ekki þessi lög og seldi þessar myndir ekki“ „Okkur þykir það mjög miður að þessar aðstæður hafi skapast“ „Hann vildi ekki klaga, klaga hvern þá?“ Stefnir í metkjörsókn í pólsku forsetakosningunum Viðvaranir vegna snjókomu og hríðar: „Þetta eru mikil vonbrigði“ Útlendingaandúð sé vinsæl leið til að marka sér stöðu á samfélagsmiðlum Stutt pása hleypti öllu í bál og brand Sjá meira