Innlent

Fólki bjargað úr snjóflóði við Ólafsfjörð

Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar frá Dalvík og Ólafsfirði voru kallaðar út skömmu fyrir klukkan fjögur til að aðstoða fólk sem sat fast í snjóflóði á veginum milli Dalvíkur og Ólafsfjarðarganga. Fólkið var í tveimur bílum. Fólkið sem var í bílunum slasaðist ekki og er búið að koma því af hættusvæðinu. Búið er að losa annan bílinn sem lenti í flóðinu og verið er að losa hinn.

Ófært er á milli Dalvíkur og Ólafsfjarðar vegna snjóflóðsins. Á Vestfjörðum er stórhríð og ófærð á Klettshálsi, og í Ísafjarðardjúpi. Sérstaklega er varað við miklum vegaskemmdum utan við krossinn á Óshlíð. Á Norðurlandi er ófært yfir Þverárfjall. Biðstaða er austan Eyjafjarðar, bæði á Grenivíkurvegi og Víkurskarði. Vatnaskemmdir eru víða á Melrakkasléttu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×