Hússjóður axlar einn ábyrgð á dauðslysi 16. janúar 2008 04:15 „
Ef einhver ber hér ábyrgð þá erum það við og engir aðrir," segir Garðar Sverrisson, formaður hússjóðs Öryrkjabandalagsins (ÖBÍ), um dauðaslys sem varð eftir að íbúi með framheilaskaða lést í fyrra af brunasárum sem hann hlaut inni á baðherbergi sínu í Hátúni. Í harðorðri greinargerð Sigursteins Mássonar, fyrrverandi formanns ÖBÍ, um aðstæður í Hátúni segir að öryggismál hafi verið í ólestri. Tvívegis hafi hann hvatt til að settir yrðu hitastillar inni á baðherbergi allra íbúða. „Ekki var aðhafst í málinu fyrr en eftir slysið," segir Sigursteinn. Helgi Hjörvar alþingismaður var formaður hússjóðs ÖBÍ á þeim tíma sem greinargerð Sigursteins vísar í en sjóðurinn fer með umsjón fasteigna þess. „Samkvæmt mínum upplýsingum var búið að skipta um hitastýrð blöndunartæki í 200 af 240 íbúðum og fjárveiting komin til að ljúka verkinu þegar þetta hörmulega slys varð síðastliðið sumar. Það breytir ekki því að ef einhver ber hér ábyrgð þá erum það við og engir aðrir," segir Garðar. Í greinargerðinni gagnrýnir Sigursteinn líka að tvívegis frá árinu 2005 hafi það gerst að fólk hafi verið látið í íbúðum sínum svo vikum skipti áður en þess var vitjað. Þó hafi ekki verið gripið til ráðstafana. Í fyrra málinu hafi stjórnarmenn hússjóðsins ekki sent samúðarskeyti til ættingja heldur aðeins reikning fyrir nýrri málningu auk húsaleigureiknings. „Hvað varðar þennan líkfund þá er hann fjarri því að vera einsdæmi í okkar samfélagi en er auðvitað sorglegur eins og aðrir slíkir. En það er ekki uppbyggilegt að nota svona harmleiki til að varpa sök á leigusala sem hefur takmarkað vald til að fylgjast daglega með leigjendum sínum. Við verðum að átta okkur á að hér er um að ræða einkaheimili sjálfstæðra einstaklinga sem hafa síðasta orðið um hvort og þá hversu mikla þjónustu, eftirlit og önnur afskipti þeir kjósa," segir Garðar um ummæli Sigursteins. „Eins og fleiri er ég fyrst og fremst hissa á hve dökk og einhliða mynd er dregin upp í þessari skýrslu, sem greinilega var ætlað að valda skyndilegu uppnámi rétt áður en gengið var til atkvæða í viðkvæmu og vandmeðförnu máli," segir Garðar enn fremur. Helgi Hjörvar vill ekki tjá sig um greinargerð Sigursteins
Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Kourani farinn úr landi Innlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Innlent Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent Fleiri fréttir Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Sjá meira