Dæmdur fyrir eignaspjöll í Danmörku 17. janúar 2008 16:23
Héraðsdómur Suðurlands hefur dæmt karlmann til 300 þúsund króna sektar og svipt hann ökuleyfi í hálft ár fyrir nokkur brot á árunum 2006 og 2007, þar á meðal eignaspjöll í verslun Kaupmannahöfn í Danmörku. Maðurinn var ákærður fyrir að ráðast á annan mann í Lækjargötu í september 2006 og slá hann í höfuðið nokkrum sinnum með þeim afleiðingum að hann hlaut skurð á vinstri augabrún og skurð fyrir neðan vinstra auga auk glóðarauga vinstra megin. Maðurinn var sakfelldur fyrir brotið en það varð honum til refsilækkunar að líklegt var talið að hann hefði ekki átt upptök að árásinni. Hins vegar var hann dæmdur til að greiða fórnarlambi sínu rúmar 100 þúsund krónur í bætur. Þá var hann sakfelldur fyrir að hafa ekið undir áhrifum fíkniefna og áfengis í umdæmi lögreglunnar á Selfossi en sú ökuferð endaði utan vegar. Þá var maðurinn ákærður fyrir að veitast að sjúkraflutningamönnum sem hugðust flytja hann á sjúkrahús eftir óhappið. Átti hann að hafa sparkað í hægra hné annars sjúkraflutningamannsins og slegið hinn í öxlina. Var hann aðeins sakfelldur fyrir hið síðarnefnda. Að lokum var hann ákærður fyri eignaspjöll í versluninni Matas í Kaupmannahöfn í ágúst 2006 en þar sparkaði hann í rúðu með þeim afleiðingum að hún brotnaði. Játaði hann sök og var því sakfelldur fyrir eignaspjöllin. Með brotum sínum rauf maðurinn skilorð fyrri dóms en í ljósi þess að hann væri að koma lífi sínu á réttan kjöl, væri hættur í neyslu og kominn í sambúð, þótti rétt að láta skilorð dómsins haldast. Var hann því einungis sektaður um 300 þúsund krónur fyrir brotin.
Mest lesið Segjast hafa skotið niður indverskar herþotur Erlent Moskítóflugur muni koma til Íslands Innlent Vilja að ríkisstarfsmenn starfi til 73 ára aldurs Innlent Auka njósnir og eftirlit á Grænlandi Erlent Alþingi hafi mistekist að tryggja þjóðinni eðlilegan hlut Innlent Bein útsending: Páfakjör í Páfagarði Erlent Sex evrópskir utanríkisráðherrar skora á Ísrael Innlent Borin út úr Bríetartúni: „Það er búið að ræna mig öllu“ Innlent Misstu aðra herþotu í sjóinn Erlent Heimila hernum að hefna fyrir árásirnar í gær Erlent Fleiri fréttir Ekkert sem bendi til málþófs um veiðigjöld Þeir sem gangi inn sem páfaefni gangi út sem kardinálar Skorað á Ísraela og átök hafin milli Indlands og Pakistans Ekki hægt að renna sér í Lágafellslaug næstu vikuna Rekstur Reykjanesbæjar fram úr vonum vegna hærri útsvarstekna Veiðigjöldin enn rædd en þó ekki á dagskrá í dag Sex evrópskir utanríkisráðherrar skora á Ísrael Stútur á 106 þar sem hámarkshraði var sextíu Vilja að ríkisstarfsmenn starfi til 73 ára aldurs Alþingi hafi mistekist að tryggja þjóðinni eðlilegan hlut Boða sprengingar við Hvammsvirkjun í allt sumar Moskítóflugur muni koma til Íslands Áberandi ráðamenn „keppist við að hnykla vöðva sína, beita hótunum og þvingunum“ Ekki inni í myndinni að fyrirkomulag hvalveiða haldist óbreytt Fékk rætin skilaboð vegna veðmála eftir að hafa klikkað á vítum Borin út úr Bríetartúni: „Það er búið að ræna mig öllu“ Álfurinn í landsliðsbúningi í ár Líflátshótanir í kjölfar veðmála og óttaslegin eftir útburð Þrír fluttir á sjúkrahús eftir umferðarslys við Smáralind Ekki talin yfirvofandi hætta en maðurinn geti orðið hættulegur Núverandi fyrirkomulag „virðist hylma yfir ábyrgð og gagnsæi“ Ítarleg skýrsla á borði ráðherra Inga skipar konu í stað karls í stjórn HMS Óboðlegt að vera „friðardúfur“ í kosningabaráttu og horfa síðan þögul á „hryllingsmynd í beinni“ Líkur á nýju gosi munu aukast þegar líða fer á haustið „Því miður er þetta þrautalending“ Reikningum Flokks fólksins lokað um stund „Hún gat ekki gefið neinar skýringar á þessu, hvorki mér né lögreglunni“ Konan í Bríetartúni komin á götuna Hækkandi matarverð hringir bjöllum hjá ráðherra Sjá meira