Innlent

Reykjanesbraut lokuð norðan við Breiðholtsbraut

Frá slysstað.
Frá slysstað. MYND/Egill

Umferðarslys varð á Reykjanesbraut við Garðheima fyrir stundu. Lögreglan, sjúkrabifreiðar og tækjabíll slökkviliðsins eru komin á vettvang og er Reykjanesbraut norðan af Breiðholtsbraut lokuð.

Lögreglan gerir ráð fyrir því að hún verði lokuð í að minnsta kosti klukkustund.

Ekki vitað um tildrög né slys að svo stöddu.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×